24.04.1933
Neðri deild: 56. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1765 í B-deild Alþingistíðinda. (2131)

160. mál, veð

Jón Auðunn Jónsson:

Það stendur nokkuð sérstaklega á um þetta. Ég veit þess nokkur dæmi af Vesturlandi, að bankarnir hafa orðið af veðum, sem þeir hafa haft í fiski við þrotabú. Í mörgum tilfellum hafa þeir tapað tugum þúsunda. Það verður ekki ætlazt til þess, að bankarnir láni gegn fiskveðum, ef svo skipast sem hér er farið fram á. Það hafa komið kröfuhafar og gengið fyrir þeirra veðrétti með kröfur, sem stofnaðar voru áður en byrjað var á útgerðinni. Hafa bankarnir þannig sannanlega lagt fram fé til þess að tryggja fyrri kröfuhafa, sem fyrirsjáanlega máttu einskis vænta áður en bankinn lagði útgerðinni til fé. Og ég sé ekki, hvernig þeir, sem standa á móti þessum breyt., geta búizt við, að bankarnir haldi áfram á þeirri braut að lána gegn fiskveðum, ef þeir fá ekki meiri rétt en áður.

Auk þess hafa veðin verið „reviseruð“ og tugir og jafnvel hundruð þúsunda kr. lögð inn á reikning búanna og þau látin taka vexti í heilt ár eða upp undir tvö ár af fé, sem átti að vera veð bankanna og almennir kröfuhafar fengið vextina, en bankarnir setið með skuldirnar.

Ég er sannfærður um, að það verður til að draga úr útgerðinni hjá smærri og miður megandi útgerðarmönnum, ef þessi breyt. fæst ekki, sem frv. fer fram á.