05.05.1933
Neðri deild: 66. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1772 í B-deild Alþingistíðinda. (2173)

131. mál, manntal í Reykjavík

Frsm. (Guðbrandur Ísberg):

Allshn. hefir haft frv. þetta til meðferðar og leggur til, að það verði samþ. óbreytt eins og það kom frá hv. Ed. Ég vil aðeins henda á það, að aðalreglan er, að prestar framkvæmi hið árlega manntal. En með l. frá 1901 var lögreglustjóranum í Reykjavík falið þetta starf og því þar með létt af prestunum þar. Í öðrum kaupstöðum, t. d. á Akureyri, munu bæjarstjórnir hafa þetta starf með höndum, og virðist það eðlilegast að svo sé, þar sem sóknarprestur getur ekki annað því. Að öðru leyti get ég vísað til grg. frv.