06.05.1933
Neðri deild: 67. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1774 í B-deild Alþingistíðinda. (2188)

106. mál, útsvör

Frsm. (Steingrímur Steinþórsson):

Allshn. mælir einhuga með því, að þetta frv. verði samþ. Það hefir gengið í gegnum hv. Ed. og hefir ekki mætt neinum andmælum þar. Frv. fer fram á ofurlitla breyt. á útsvarsl. frá 1926, viðvíkjandi samvinnufélögunum, og er fram komið af því, að það hafa risið upp megnar deilur milli niðurjöfnunarnefndar, sem á að ákveða, hvað þau skuli greiða í útsvar, og félaganna, og þykir tryggara að leggja það í hendur skattanefndar að ákveða þann arð, sem félögin hafi af verzlun við utanfélagsmenn. — Ég hefi svo ekki meira að segja, en vænti, að hv. d. geti fallizt á þetta litla frv.