31.03.1933
Neðri deild: 41. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 144 í B-deild Alþingistíðinda. (221)

1. mál, fjárlög 1934

Magnús Jónsson:

Við þennan kafla fjárl. á ég aðeins eina brtt., það er 7. brtt. á þskj. 296. Hún er um það að veita verkamanninum Magnúsi Magnússyni dálítinn styrk til lækninga, vegna áverka, sem hann fékk við vegavinnu ríkisins. Það var árið 1906, að þessi maður var í vegavinnu á Mosfellsheiði. Hrökk þá stálflís úr hamri upp í auga hans, og átti maðurinn mjög lengi í þessu og missti síðast augað. Hann hafði aldrei haft sterka sjón, og læknar töldu hættu á því, að hann gæti einnig misst sjónina á hinu auganu, og er nú svo komið, að á því er mikil hætta. Hann hefir víst áreiðanlega ekki verið nefndur hér á Alþ. fyrr, en fer nú fram á dálítinn styrk til þess að geta leitað sér góðra lækninga. Ég trúi ekki öðru en að þingið verði við þessari litlu beiðni, þegar það er líka athugað, að maðurinn varð fyrir þessu slysi í ríkissjóðsvinnu. Ég orðlengi þetta ekki frekar, enda eru nú svo fáir þm. í d., að þó að ég sannfærði þá alla, nægði það ekki til þess að koma till. minni fram.