09.05.1933
Neðri deild: 69. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1791 í B-deild Alþingistíðinda. (2215)

110. mál, útflutningsgjald af síld og fl.

Jóhann Jósefsson:

Ég verð að segja hæstv. forsrh. það, að þó að ég beri hér fram á Alþingi kröfur og óskir fyrir mitt kjördæmi, þá sé ekki ástæða til að láta kjördæmið gjalda þess, þó að ég sé hér á öndverðum meiði við till. hv. meiri hl. fjhn. í þessu máli. Ég kannast ekki við, að Vestmannaeyjakaupstaður sé sá þurfalingur á ríkissjóði, að ástæða sé til að benda á hann einan allra kjördæma í því efni. Hæstv. ráðh. veit, hversu miklar tekjur ríkissjóður fær úr Vestmannaeyjum. Og ég get fullvissað hann um það, að í Vestmannaeyjum er enginn maður, sem mundi slá hendinni á móti því að fá ríkissjóðsgjöld Eyjanna í bæjarsjóðinn og greiða svo úr honum öll gjöld og þarfir kaupstaðarins, að viðbættu því, sem ríkið leggur fram til embættismanna sinna og annars, sem því ber þar að kosta. Ég kann því illa, að hæstv. ráðh. sé að beina þessu spjóti sínu einungis til Vestmannaeyjakjördæmis, og hygg ég, að hann megi engu síður snúa því til annara.

Hv. frsm. fjhn. hélt því fram, að það gæti ekki annað komið til mála en að d. samþ. brtt. meiri hl. n., sérstaklega eftir afgreiðslu þess frv., sem hér var næst á undan á dagskránni. Það kemur þá að því, að prófuð verði til þrautar sanngirni þessarar hv. þd. gagnvart smærri útvegsmönnum, samanborið við sumar aðrar stéttir þjóðfélagsins.

Þetta mál, sem hér liggur fyrir, er að vísu ekki stórt, en í sambandi við önnur úrlausnarefni, sem fyrir þinginu liggja, getur það verið góður leiðarvísir til bendingar um það, hvers sá hluti landsbúa — smáútgerðarmenn — getur vænzt af þinginu, enda hafa þeir ekki fylgt sínum kröfum með hávaða á fundum og kröfugöngum hér í höfuðstaðnum í vetur, en það hafa aðrir gert. Hér er um að ræða lítilsháttar leiðrétting á skattskyldu, þannig að létt verði af að nokkru leyti útflutningsgjaldi af fiskmjöli, sem er alveg ný framleiðslugrein hér á landi og nauðsynleg. Og það er ekki fyrr en þessi iðnaður var hafinn hér á landi, sem útlendingar fara að keppa um að ná í hráefnið, fiskúrgang og hausa. Hæstv. ráðh. sagði, að beinaverzlunin mundi falla eftir gömlum farvegi, en það er ekki rétt. Það er fyrst eftir að landsmenn eru vaknaðir til þess að starfrækja beinamjölsverksmiðjurnar, þá koma útlendir menn hingað til þess að keppa um kaup á fiskúrganginum. Mér virðist, að afstaða hv. meiri hl. fjhn. í þessu máli sé alveg laukrétt. En aftur á móti finnst mér, að hæstv. ráðh. og hv. frsm. meiri hl. leggi allt of mikið kapp á að viðhalda óréttlátum tolli á þeirri vöru, sem hér um ræðir. Ég stend við það, sem ég sagði áður, og mun taka aftur brtt. við þetta frv., en greiða atkv. á móti brtt. meiri hl., þrátt fyrir ofsa hv. frsm. meiri hluta.