09.05.1933
Neðri deild: 69. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1796 í B-deild Alþingistíðinda. (2219)
110. mál, útflutningsgjald af síld og fl.
Forseti (JörB):
Út af ummælum hv. þm. G.-K. um, að raskazt hafi röð á málum hér, vil ég taka það fram, að sú breyt. hefir orðið í Ed. Annars er það hæpið um sjálfstæð mál, að þau verði ekki aðskilin í meðferð. Það hefir hver þingd. á valdi sínu, en ekki forseti.