11.04.1933
Neðri deild: 48. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1798 í B-deild Alþingistíðinda. (2223)
154. mál, áveitu á Flóann
Frsm. (Bjarni Ásgeirsson):
Landbn. var sent þetta frv., og er það útbúið af n. þeirri, sem ríkisstj. skipaði síðastl. sumar samkv. ályktun síðasta Alþ. til að hafa þetta mál með höndum. Landbn. komst að þeirri niðurstöðu, að réttast væri að leggja málið fyrir d. eins og það kom frá þessari n., og legg ég til, að frv. verði vísað til 2. umr. utan n. Þó mun landbn. bera ýmsar brtt. fram við 2. umr.