22.04.1933
Neðri deild: 55. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1811 í B-deild Alþingistíðinda. (2236)
154. mál, áveitu á Flóann
Hannes Jónsson:
Ég stóð upp til þess að mælast til, að hæstv. forseti tæki þetta mál af dagskrá. Það er ekki forsvaranlegt að ætla að hespa það af á svo stuttum tíma án nokkurrar verulegrar athugunar.
Hv. flm. þessa frv. hefir þá aðstöðu að vera forseti þessarar d., en hann má ekki misnota þá aðstöðu til að afgreiða þetta frv. með meiri hraða en forsvaranlegt er. Hér er um svo mikið mál að ræða, að ekki er sama, hvernig það er afgr. Mér sýnist full ástæða til þess, að dm. fái að athuga það nánar, og það verður með því eina móti, að málið sé tekið af dagskrá.