01.06.1933
Neðri deild: 91. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 149 í D-deild Alþingistíðinda. (2281)

212. mál, sjávarútvegsmál

Flm. (Jóhann Jósefsson):

Hv. 3. þm. Reykv. hefir rökstutt betur en ég myndi hafa getað gert réttmæti þess liðs þáltill., sem hv. þm. Seyðf. vildi láta fella niður. En að því er snertir brtt. hv. þm. Seyðf. að öðru leyti, verð ég að halda því fram, að sú rannsókn, sem hann vill láta fara fram samkv. viðaukatill. sinni, verði rannsókn á málum sjávarútvegsins til trafala. Að því er iðnaðinn snertir, er þess að gæta, að tímarnir, þótt slæmir séu, gera það að verkum, að ýmislegt er gert af hálfu hins opinbera, sem tryggir honum betri aðstöðu en áður, t. d. innflutningshöftin. Því er varla þörf á að blanda þeim atvinnuvegi inn í þetta mál.

Ég benti hv. þm. Seyðf. á það, er hann fór fram á að bæta brtt. sinni inn í mína, að betra væri að gera sérstakar ráðstafanir um þau atriði, er í henni felazt. Það verður að meta hina brýnustu þörf mest. Nú hefir þingið gert sérstakar ráðstafanir vegna landbúnaðarins, en þá er sjávarútvegurinn eftir. Þetta eru tveir aðalatvinnuvegirnir, og öllum má vera ljóst, að örlög hinna vinnandi stétta eru svo nátengd þessum atvinnugreinum, að þar verður ekki á milli greint. Ég óska því eftir, að þáltill. verði samþ. óbreytt, í stað þess, að hún verði færð svo út, að ekki megi vænta ávaxta af henni á næsta þingi, eins og til er ætlazt.