31.03.1933
Neðri deild: 41. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 163 í B-deild Alþingistíðinda. (231)

1. mál, fjárlög 1934

Frsm. fyrri kafla (Ingólfur Bjarnarson):

Flm. hafa nú allir mælt fyrir till. sínum, og kemur þá röðin að mér að lýsa afstöðu fjvn. Það er þó ekki að öllu þægilegt, þar sem margar brtt. hafa fyrst komið fram á fundinum og n. því enga aðstöðu haft til að athuga þær, né leita til þeirra, er hefðu getað gefið nauðsynlegustu upplýsingar, svo sem t. d. vegamálastjóra o. fl.

Vil ég þá í stuttu máli lýsa afstöðu n. til brtt. og fyrst minnast á þær brtt. í heild, sem miða að hækkun framlaga til þjóðvega, eða taka upp ný framlög til þeirra. Þessar brtt. eru í raun og veru í samræmi við stefnu n. og bornar fram af þeirri nauðsyn, að greiða fyrir atvinnuhjálp úti um land. N. telur því, að ef til vill geti verið rétt að ganga inn á till. þessar að meira eða minna leyti. En þar sem hún hefir ekki haft tíma til að bera sig saman um brtt. né við vegamálastjóra, vill hún beina því til flm., hvort þeir sjái sér ekki fært að taka brtt. aftur til 3. umr. — án þess þó að ég geti fullyrt, að hún vilji ganga inn á þær allar. Mun ég því ekki gera brtt. þessar að nánara umtalsefni fyrr en ég hefi heyrt, hvort flm. vilja taka brtt. sínar aftur eða ekki.

Vík ég þá að brtt. í þeirri röð, sem fyrir þeim var talað. Verða þá fyrst fyrir mér brtt. frá hv. þm. N.-Ísf. um að hækka framlag til hafnarbóta um 5000 kr., er gangi til bryggju í Hnífsdal. Þetta mál lá alls ekki fyrir n. að þessu sinni. 1930 lagði fjvn. til að veita styrk til þessarar bryggju, og skyldi honum skipt niður á þrjú ár. Sama var um Keflavíkur- og Húsavíkurbryggjuna. Svo breyttust tímarnir, sem kunnugt er, og lítið varð úr framkvæmdum. Hlutaðeigendur treystu sér ekki til að leggja fram fé á móti ríkisstyrknum og framkvæmdirnar féllu niður. Það má og ef til vill segja, að n. hafi ekki kynnt sér mál þetta nægilega eða fylgzt með framkvæmdum þess, en henni var ekki kunnugt um, að þessi bryggja væri komin neitt verulega á rekspöl. Og þegar trúnaðarmaður landsstj. í þessum efnum var spurður að því í fjvn., hvort þeim 20 þús., sem standa í þ. á. fjárl., væri þegar ráðstafað til bryggjugerða, kvað hann nei við. Af því væri aðeins 3500 kr. ráðstafað til bryggju á Arnarstapa. Annað væri óbundið. Því var Hnífsdalsbryggja ekki tekin með. N. hefði talið rétt, ef hv. flm. vildi taka brtt. sína aftur til 3. umr., svo n. fengi tíma til að athuga málið nánar.

Þá er önnur brtt. frá sama þm., um styrk til viðgerðar brimbrjótnum í Bolungavík. Hv. flm. sagði, að brimbrjóturinn væri nú orðinn eitt af eilífðarmálunum, og er sú fyndni ekki fjarri sanni. Fyrir n. hefir ekkert erindi né umsókn legið um þetta, enda virðist þetta allt vera nokkuð í lausu lofti, eftir skýrslu hv. flm. Hann sagði, að vantaði umsögn hreppsnefndarinnar um það, hvað gera ætti við brimbrjótinn. Virðist því sem hreppsnefndin eigi að segja þarna fyrir verkum. Oft hafa nú mistök verið á ferðinni í sambandi við þetta mál, en þá teldi ég nú skörina fara fyrst upp í bekkinn, ef hreppsnefndin á að taka málið að sér að öllu leyti. N. leggur því eindregið á móti þessari brtt.

Þá flytur hv. 1. þm. N.-M. till. um fjárframlög til vega í sínu kjördæmi, og hefi ég ekkert við því að segja frekar en ég er búinn almennt að skjóta til þm., hvort þeir treysti sér ekki til að taka slíkar till. aftur til 3. umr.

Þá er næst hv. 3. þm. Reykv. Hann mælti hér fyrir einskonar sjúkrastyrk til manns, er orðið hefði fyrir slysi fyrir alllöngu síðan, þannig að stálflís hafði lent í augað á honum og blindað hann, er hann var við vegagerð á Mosfellsheiði, og óttast maðurinn nú að missa sjónina á hinu auganu líka. Eins og hv. þm. eflaust muna, þá hafa oft legið fyrir Alþ. beiðnir um ýmiskonar sjúkrastyrki. Hefir fjvn. aldrei treyst sér til að mæla með þeim. Hún hefir fyrst og fremst lítið svo á, að það væri afaróheppilegt, að þingið ætti að skera úr um þau mál og þingmenn ekki vel til þess kjörnir, og ef þessi leið yrði farin, myndi koma fram mjög mikið misrétti gagnvart fjölda manna, sem ekki fengju þessa styrki, en ættu e. t. v. meiri kröfur til hjálpar en þeir, sem kæmu fram beiðnum sínum. N. er á sömu skoðun enn, og treystir sér alls ekki að mæla með nokkrum styrkbeiðnum af þessu tægi. N. verður því að leggja á móti þessari till., sem þarna liggur fyrir, og hefi ég ekki meira um hana að segja.

Þá er hér 8. brtt. á þskj. 296, frá hv. 1. þm. S.-M., um að lækka um helming — úr 40 þús. niður í 20 þús. kr. — fjárveitingu til Holtavörðuheiðarvegar. Hv. 1. þm. Eyf. hefir skýrt þetta mál og bent á, að ekki væri heppilegt, að draga úr þessari fjárveitingu, svo að ég þarf litlu við að bæta, en get lýst yfir því, að vegamálastjóri leggur mjög mikið kapp á, að ekki sé minnkað framlag til þessa vegar. Þarna er um mjög langan veg að ræða, sem kostar geysifé og langan tíma. En hvað það snertir, að þetta sé sumarskemmtivegur einungis, þá nær það engum svörum, og má benda á, að það væri þá sennilega þarflítið að láta ríkið kosta þarna snjóbíl á veturna. Það sýnir þá þörf, sem er á því, að ekki teppist leiðin yfir heiðina. Ég vil líka benda á, að eftir því, sem kunnugir menn telja og vegamálastjóri sérstaklega heldur fram, eru miklar líkur til þess, að þegar búið er að leggja veg yfir alla heiðina muni hann oftast fær bifreiðum allan veturinn. Leiðin, sem fyrirhuguð er, er talin það snjólétt, að hún muni í flestum tilfellum fær; hitt þarf ég ekki heldur að benda á, að þarna liggja ákaflega þéttbýlar og stórar sýslur að, og skiptir miklu máli fyrir þær; að þetta vegasamband sé sem greiðast. N. leggur því eindregið á móti þessari brtt. hv. 1. þm. S.-M. — Um till. þessa sama hv. þm. um fjárframlög til vegar í Skriðdal hefi ég ekki annað að segja en að ég óska, að hún eins og aðrar slíkar till. verði tekin aftur til 3. umr.

Þá flytja þeir hv. 1. þm. S.-M. og hv. 1. þm. N.-M. brtt. XVI. á þskj. 296, um að bæta aths. við framlagið til Eimskipafélags Íslands, að félagið hagi áætlun sinni þannig, að strandferðirnar taki til allra landshluta. N. hefir lítilsháttar athugað þessa till. og telur, að þessi aths. muni ekki hafa mikla þýðingu, enda skildist mér á flm. sjálfum, að hann teldi, að þetta kynni að verða eitthvert aðhald, en bindi fél. ekki í neinu og væri nánast bending. N. fannst þetta ekki það mikils virði, að ástæða væri til að samþ. þannig lagaða aths., og leggur því frekar á móti till., enda telur n. sjálfsagt, að hægt væri að komast að sanngjörnum samningum við Eimskip um þessi mál, en þessi aths. mundi litlu koma til vegar í þessu efni. N. er kunnugt um, að framkvæmdarstjóri félagsins hefir sýnt vilja á að bæta úr brýnni þörf Austfirðinga, með því að ákveða þar viðkomur á hausti komanda samkv. þeirra óskum og þörfum. — Þá ber hv. 1. þm. S.-M. fram till. um bátabryggju á Vattarnesi. N. hefir það að athuga við þessa till. í fyrsta lagi, að fyrir n. hefir ekki legið neinn uppdráttur um þessa fyrirhuguðu bryggju eða áætlun um, hvað hún ætti að kosta. Það liggur erindi fyrir n. frá ábúandanum á Vattarnesi um, að æskilegt væri að fá þessa bátabryggju, en engin ákveðin upphæð tiltekin eða skýrsla um það, hvernig eigi að byggja. Nú finnst n. sjálfsagt, að umsjónarmaður ríkisins við þessar framkvæmdir fengi tækifæri til að athuga þetta og gera sínar tillögur, enda býst ég e. t. v. við, að það hafi verið gert. Þó hefir n. spurzt fyrir um það og þá hefir ekki verið fyrir hendi nein áætlun, en mér hefir skilizt á hv. 1. þm. S.-M., að áætlunin hafi verið gerð og hljóði upp á 13 þús. kr.; hér sé því um að ræða byrjun á þessari bryggjugerð. Í öðru lagi er það við till. að athuga, að ekki er nefnt, í hvaða hlutfalli styrkurinn eigi að greiðast, þótt mér skildist á hv. flm., að það ætti að vera að 1/3 eins og venjulega, en slíkt ætti vitanlega að standa í till. Sem sagt hefir n. þegar fyrir sitt leyti ráðstafað þeim styrk, sem samkv. frv. á að verja í þessu skyni, og þess vegna telur hún þurfa, ef þessi till. á að ganga fram, að fjárframlagið í heild verði hækkað. Þess vegna er það, að n. vill skjóta því til hv. flm., að hann taki till. aftur til 3. umr. og n. gefist þá kostur á að athuga málið nánar og fá betri upplýsingar um þetta og taka þá afstöðu til þess eftir því sem fram kæmi.

Þá talaði hv. þm. Ak. fyrir V. brtt. á þskj. 296, um að hækka tillagið til Rauðakrossdeildarinnar á Akureyri um 1000 kr. N. viðurkennir, að deildin vinnur þarft og gott starf, og hefir legið fyrir n. skýrsla um, að mjög mikið hafi verið unnið og að sumu leyti í svipuðum stíl og félagið Líkn gerir hér í Reykjavík. En þrátt fyrir það hefir n. ekki séð sér fært að ganga inn á að styðja þessa till. En þar sem helmingur upphæðarinnar, 500 kr., er þannig til kominn, að tillagið, sem ríkissjóður veitti 1931, var aldrei greitt út vegna handvamma þeirra, sem við áttu að taka, þá finnst n. vera dálítið harðleikið, að félagið verði af þessum styrk vegna þess, að beiðni um að fá hann útborgaðan kom of seint fram. Vill því n. mæla með því við hæstv. ríkisstj., að þessi ógreiddi styrkur verði nú greiddur félaginu. Ég vildi gjarnan óska eftir svari frá hæstv. dómsmrh., hvort hann mundi sjá sér fært, eftir þessum tilmælum n., að greiða styrkinn. En að öðru leyti treystir n. sér ekki að ganga lengra og verður á móti till. eins og hún liggur fyrir.

Mér finnst ekki vera mikil nauðsyn að tala langt mál um þessar till. Það eru fáir þm. hér viðstaddir og ekki þeir flm., sem ég vildi tala til, þar á meðal hv. þm. Seyðf., sem talaði fyrst og fremst um frv. almennt og afstöðu n. til tekjulækkunarinnar sérstaklega, og ætla ég því að sleppa að ganga nokkuð inn á það að öðru leyti en því, að ég tel það óhrakið, sem fram kom í áliti n., að tekjuáætlunin í frv. hafi verið fremur óvarleg, en hitt algerlega órökstutt, sem hv. þm. sagði, að hún væri mjög varleg og að mikill tekjuafgangur mundi verða. Sérstaklega var hann hræddur um, að tekju- og eignarskatturinn færi upp úr öllu valdi fram yfir áætlun n. Mér finnst ekki vera svo bjart yfir atvinnuvegunum þetta ár, sem nú er byrjað, að hægt sé að gera sér mjög glæsilegar vonir um mikinn tekjuskatt af þeim, og einnig vil ég benda á þá lækkun á dýrtíðaruppbót embættismanna, er orðið hefir og töluverð áhrif mun hafa til lækkunar tekjuskattinum. Hvað því viðvíkur, að hv. þm. taldi svo hættulegt að hafa tekjuáætlunina varlega, þá verð ég að halda hinu fram, að það sé ekki síður hættulegt að hafa áætlunina svo óvarlega, að h. u. b. sé víst, að meiri eða minni tekjuhalli verði á árinu. Ég ætla svo ekki að tala um þetta frekar, en víkja aftur að till., sem hv. þm. ber fram um fjárveitingu til viðbótarbyggingar sjúkrahúss á Seyðisfirði. Þar er gamalt sjúkrahús, sem líklega er hugsað að byggja við, en hinsvegar liggur ekkert fyrir um, hvernig þetta er hugsað, og skildist mér, að enginn vissi eiginlega hvernig ætti að byggja, og því síður hvað það ætti að kosta. Og ekki liggur yfir höfuð fyrir, að málið hafi verið athugað af þekkingarmönnum á því sviði, sem vitanlega yrði að krefjast. Eins og málið því liggur fyrir, verður n. að leggja eindregið á móti till. Hinsvegar er um till. hv. þm. um hækkun á tillagi til Fjarðarheiðarvegarins hið sama að segja og aðrar till. þess efnis, að n. vill gjarnan, að hv. flm. taki hana aftur til 3. umr.

Þá er hér lítil till. frá hv. þm. V.-Sk. um læknisstyrk til Álftveringa. N. er ekki svo kunnugt um, hvort þarna er þörf á styrk í samræmi við aðra, sem slíkan styrk hafa fengið, og hafa nm. um það óbundin atkv. En almennt vildi ég segja það í þessu sambandi, að þar sem samgöngur hafa mjög batnað á seinni tímum, og fara batnandi ár frá ári, þá sýnist álitamál, hvort þörfin fyrir þessa læknisvitjanastyrki hefir ekki minnkað á ýmsum stöðum við bættar samgöngur, og vill skjóta því til heilbrigðisstj., hvort ekki væri vert, að það væri athugað.

Um till. um framlög til vega, bæði frá hv. þm. N.-Þ. og hv. 2. þm. Rang., hefi ég ekkert að segja frekar en það, sem ég hefi áður um vegatill. mælt. En viðvíkjandi styrkbeiðni, sem fyrir liggur og flutt er af hv. þm. Rang., um 1000 kr. styrk til Kristjáns Grímssonar læknis, til framhaldsnáms í handlækningum erlendis, þá verður afstaða n. að vera hin sama og til annara námsstyrkja, að hún sér sér engan veginn fært að gera þar upp á milli og leggur til, að þetta verði fellt. Það er eins og við vitum mjög mikill fjöldi manna, sem á í miklum vandræðum með að ljúka sínu námi erlendis, og telur n. rétt, að láta eitt yfir alla ganga.

Um þá beiðni, sem flutt er af hv. þm. Skagf. um sjúkrastyrk til Gísla Kristjánssonar, 1500 kr., er hið sama að segja og ég fyrr tók fram, að n. treystir sér ekki að mæla með nokkrum sjúkrastyrkjum.

Þá var það hv. 1. þm. Ey f., sem mælti hér fyrir styrk til öldubrjóts á Siglufirði, og er í sambandi við það farið fram á ábyrgð ríkisins í stórum stíl. En þar sem hv. þm. hefir lýst yfir, að hann taki þessa till. aftur að þessu sinni, sé ég ekki ástæðu til að fara um hana fleiri orðum.

Þá á ég eftir að minnast á till. hv. þm. Ísaf. um styrk til fjörefnarannsókna á þjóðlegum íslenzkum matvælum. Því fer fjarri, að n. detti í hug að ætla sér þá dul að neita, að hér geti verið um mjög þarfan hlut að ræða. En hinsvegar er það svo margt, sem n. hefir orðið að mæla á móti, þótt hún kannist við einhverja nytsemi þess, að hún treystir sér ekki heldur til að mæla með þessu og mun greiða atkv. á móti till. Sama er í raun og veru um afstöðu n. að segja til ferðastyrksins, sem hv. þm. vill láta greiða Jónasi Kristjánssyni héraðslækni til að sækja læknafund í Stokkhólmi. N. getur ekki mælt með þessu, enda heyrðist mér á hv. flm., að hann væri mjög hræddur um, að viðkomandi læknir myndi ekki kunna honum neina þökk fyrir að hafa borið beiðnina fram, og n. sér ekki ástæðu til e. t. v. að móðga hann með því að mæla með þessum styrk til hans. Ekki er það af því, að n. hafi nokkra ástæðu til þess að telja annað en að sú för, sem hann myndi fara, gæti orðið að einhverju liði. Það er einungis hin almenna afstaða, sem n. hefir séð sig nauðbeygða til að taka gegn fjárbeiðnum til einstakra manna yfirleitt, sem ræður í þessu sem svo mörgu öðru.

Finn ég þá ekki ástæðu til að segja meira um þær brtt., sem hér liggja fyrir.