03.06.1933
Neðri deild: 94. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 163 í D-deild Alþingistíðinda. (2314)

215. mál, atvinnumál

Magnús Jónsson [óyfirl.]:

Þegar þáltill. um sjávarútvegsmál var hér til umr., lét ég það í ljós, að ég væri hlynntur efni þeirrar till., sem hér liggur fyrir, og sérstaklega í sambandi við kreppumálin tók ég það greinilega fram, að það vantaði tilfinnanlega skýrslur um hag annara stétta í landinu en bænda. Þó ég þess vegna greiddi þá atkv. móti till. sem brtt., hugsaði ég mér að skrifa þáltill. um þessa nefndarskipun, en í þeim svifum er þessari till. útbýtt. Ég mun því greiða atkv. með þessari till., til þess að næsta þing geti ekki vísað frá umr. um þetta mál af þeirri ástæðu, að rannsókn vanti í málinu. En eins og allir sjá, er nauðsynlegt, að rannsókn fari fram um slík mál sem þessi áður en ráðstafanir eru gerðar.