02.06.1933
Sameinað þing: 9. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 170 í D-deild Alþingistíðinda. (2329)
208. mál, templaralóðin í Reykjavík
Magnús Jónsson [óyfirl.]:
Mér hefði þótt, eins og hv. þm. V.-Húnv., vænt um að fá yfirlýsingu hv. 1. flm. um það, að hann teldi réttara, að forsetarnir bæru þetta undir Alþingi.
Þó að þetta mál sé ekki stórt í hópi þjóðmálanna, þá er það ekki lítilsvert atriði, hvernig útlits er kringum Alþingishúsið. Og ég verð að segja, að það er nokkur geigur í mér að fela svona vítt umboð þeim mönnum, sem ég veit ekki einu sinni, hverjir eru, ef þeir eiga að binda endahnút á málið.
Ég vil undirstrika orð hv. þm. V.-Húnv., að forsetarnir, sem kosnir verða, bindi ekki samninginn fyrr en Alþingi kemur saman. Það er ekki útlit fyrir, að templarar byggi í sumar, svo að þessi bið ætti að verða þeim að meinfangalausu. Forsetar geta hinsvegar undirbúið samning, svo að fyrirhöfn þingsins verði lítil. Og þar sem ég skoða goodtemplararegluna svona hálfopinbera stofnun, þá hneykslast ég alls ekki á þeim ummælum hv. 1. flm., að forsetar teygi sig til samkomulags og reyni að gera rímilega samninga við þá.