02.06.1933
Sameinað þing: 9. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 178 í D-deild Alþingistíðinda. (2345)
202. mál, viðskiptamál og verzlunar- og siglingasamninga milli Íslands og Noregs
Flm. (Héðinn Valdimarsson):
Mér fannst á orðum forsrh., að hann hefði breytt um skoðun, á þann veg, að hann treysti sér nú til að segja upp þessum samningum án þess að leita til þingsins með það. Um þetta vildi ég gjarnan heyra ákveðið.