31.03.1933
Neðri deild: 41. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 183 í B-deild Alþingistíðinda. (240)

1. mál, fjárlög 1934

Guðbrandur Ísberg:

Við þennan seinni kafla fjárl. á ég nokkrar brtt. á þskj. 296. Ein þeirra er á þessu þskj. merkt XXX, við 14. gr. B. X. b. Brtt. þessi fer fram á það, að í staðinn fyrir 1500 kr., sem áætlað er, að Iðnfélagi Akureyrar verði veittar til þess að halda uppi iðnskóla, komi 2500 kr. Iðnfélag Akureyrar er fámennt, og stafar það af því, að Akureyri hefir fram að þessu verið fremur lítill bær, en er nú í hröðum vexti. Hafa þar verið heldur fáir iðnaðarmenn. Þó hefir félagið getað haldið uppi skóla undanfarin nokkur ár. Hefir hann orðið dýr í rekstri og það eitt gert skólahaldið mögulegt, að félagið á hús á Akureyri, sem það hefir haft tekjur af. Hefir Iðnfélagið verið svo heppið að geta leigt gagnfræðaskóla Akureyrar húsrúm, en það fé, sem inn kom í leigu, hefir hjálpað mjög til að halda uppi kvöldskólanum. En nú er svo komið, að þessir tveir skólar, sem starfað hafa í sama húsi og undir stjórn sama skólastjóra, geta ekki lengur starfað saman. Hefir komið upp óánægja, sem orðið hefir til þess, að skilja varð þá að. Þetta leiðir af sér; að iðnskólinn verður miklu dýrari í rekstri en áður. Skólinn hefir fengið nokkurn styrk frá Akureyrarbæ undanfarið og Akureyrarbær mun hafa lofað því að hækka nokkuð styrkinn til félagsins vegna skólans, miðað við það, að aukinn styrkur fengist úr ríkissjóði. Hér er því aðeins farið fram á aukinn styrk um 1 þús. kr. Ef þessi styrkur fengist og álíka frá Akureyrarbæ, þá mundi þetta litla og fátæka iðnfélag reyna að halda skólanum áfram. Nú á þessum atvinnuleysistímum er það brýnileg nauðsyn, að leitað verði sem víðast á um atvinnumöguleika, og að sem flest og fjölbreyttust störf geti orðið unnin hér innanlands, Að því stefnir m. a. iðnfræðslan. Ég efast ekki um, að hv. þdm. er ljós þessi nauðsyn — hún er jafnt fyrir hendi á Akureyri sem í Reykjavík — og þess vegna séu þeir fúsir til að leggja þessari litlu styrkbeiðni lið.

Þá á ég aðra brtt. rómv. 31, við 15. gr. 25. lið. Þar er farið fram á, að styrkur til Halldórs Kiljans Laxness falli niður úr fjárl. Þessi styrkur er áætlaður 2500 kr. Næsti liður í fjárl. á eftir styrknum til Laxness er styrkur til Jóns Leifs tónskálds, 1500 kr. Það er líkt á komið með þessum 2 ungu mönnum. Þó er miklu líklegra, að Laxness eigi hægra með að sjá sér farborða en Jón Leifs. En hv. fjvn. hefir nú borið fram till. um að strika út með öllu styrkinn til Jóns Leifs, en látið styrkinn til H. K. L. halda sér, sem þó hefir verið hækkaður um 900 kr. Mér er óskiljanlegt, hvernig á þessari hækkun stendur. Maður gæti vænzt þess, að maður, sem hefir skrifað svo margar bækur, sem Laxness hefir gert, og eftir þeim ritdómum, sem þær hafa fengið hjá sumum mönnum, ætti að geta unnið fyrir sér með ritstörfum sínum. Ég vil ekki að þessu sinni, nema sérstakt tilefni gefist til, fara nánar út í ritstörf þessa unga manns, þótt ýmislegt sé við þau að athuga. Ég vil aðeins benda á það, að svo framarlega, sem það er réttmætt, eins og hv. fjvn. hefir lagt til, að fella með öllu niður styrk til Jóns Leifs, þá sé jafnréttmætt og ekki síður að fella niður með öllu styrkinn til Halldórs Kiljans Laxness.

Ég hefi svo ekki fleiri orð um þetta að sinni, en sný mér að 3. till. minni á þskj. 296. Það er 36. liður, við 16. gr. 24. Þar er farið fram á, að veittur sé styrkur til Geirs Þormars, tréskurðarmeistara á Akureyri, til þess að halda uppi kennslu og námskeiðum í tréskurði. Er sú upphæð 650 kr. Ég vil til samanburðar geta þess, að í sömu fjárlagagr. er Guðmundi frá Mosdal, ungum manni, sem svipað stendur á um, áætluð sama upphæð í sama skyni. Það er ekki nema gott eitt að segja um þennan unga hagleiksmann, Guðmund frá Mosdal. En það verð ég að álíta, að hans möguleikar séu meiri að sjá sér farborða en hjá Geir Þormar. Geir Þormar hefir sama hlutverk á Akureyri sem Guðm. frá Mosdal hefir á Vesturlandi. Og þó mætti segja, að Geir Þormar hefði víðtækara verksvið, þar sem hann hefir nú um mörg undanfarin ár haft teikninámskeið, ekki aðeins á Akureyri og þar í nærsveitunum, heldur jafnvel í öðrum sýslum á Norðurlandi. Hefir hann að staðaldri fjölda ungra manna, er hann veitir tilsögn, og mér er kunnugt um, að hann hefir gert og látið af hendi hundruð teikninga til ýmissa manna, mest þó til sinna námsmanna, án nokkurs endurgjalds. Sem sagt, hann hefir stöðugt leiðbeint mönnum, sem leitað hafa til hans. Mér finnst það hart að svipta þennan mann þeim litla styrk, sem hann hefir haft. Hann hefir áður haft 800 kr., en ég fer ekki fram á meiri styrk en Guðm. frá Mosdal er ætlaður, eða 650 kr. Ég fer aðeins fram á það, að þeir séu gerðir jafnir, og er það sú minnsta krafa, sem hægt er að gera. Ég vænti því þess, að hv. þd. sjái sér fært að samþ. þennan litla styrk, sem þó er nú lækkaður, til þessa manns, sem er eini maðurinn á Norðurlandi, sem hefir fullkomna kunnáttu til að veita tilsögn í tréskurði.