20.03.1933
Neðri deild: 31. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 265 í D-deild Alþingistíðinda. (2404)

88. mál, björgunarstarf og eftirlit með fiskibátum á Faxaflóa

Jóhann Jósefsson:

Það má af líkum ráða, að ég mun líta með fullri samúð á þá þáltill., sem hér er til umr., og eins þá, sem næst kemur á dagskránni, þar sem ég get talað af nokkurri reynslu um það, hversu mikilsvert er, að ríkið leggi fram þá aðstoð, sem í því er fólgin að halda uppi björgunarstarfsemi og landhelgisgæzlu á veiðistöðvunum.

Eins og hv. þm. Borgf. benti réttilega á, var gerður samningur milli ríkisins og Vestmannaeyinga fyrir nokkrum árum um það, að ríkið héldi uppi þessari eftirlitsstarfsemi á miðum Vestmannaeyinga, gegn því að þeir greiddu nokkra upphæð fyrir. Inngangur þess máls hefst með því, að Vestmannaeyingar keyptu björgunarskip árið 1919, sem þeir svo lögðu á sig mikil fjárútlát til þess að halda úti. Vil ég enn þakka hv. Alþingi, hvað vel það hefir stutt Vestmannaeyinga í því efni. Árið 1926 var þannig um samið, að ríkið tæki við björgunarskipi Vestmannaeyinga og notaði það við landhelgisgæzluna, en tæki jafnframt að sér að rækja gæzlu- og björgunarstarfsemina við Vestmannaeyjar á sama hátt og gert var meðan Vestmannaeyingar höfðu skipið sjálfir. Aðaláherzluna átti þannig að leggja á björgunarstarfsemina, en hafa eftirlit með landhelginni og veiðarfærunum jafnframt. Þetta hefir verið gert, og vil ég þakka þeirri hæstv. stj., sem nú situr, og þeim, sem hafa farið með þessi mál fyrir hennar hönd, fyrir það, að hún hefir staðið mjög vel að því, að þessi starfsemi félli ekki niður. Ég þarf ekki að fara að rifja upp deilur þær, sem urðu við hv. fyrrv . dómsmrh. út af þessu máli, þegar Þór strandaði. Hv . Alþingi snerist þá vel við því að leiðrétta þann misskilning, er gripið hafði hug þess hæstv. ráðh. um rétt okkar Vestmannaeyinga til gæzlu framvegis. Veiðarfæragæzlan hefir nú tekið nokkrum breyt. til hins verra, en frá því mun ég skýra nánar í sjútvn. Álít ég heppilegra að tala fyrst og fremst um þær misfellur, sem um er að ræða, við nefndina.

Það eru 15 þús. kr., sem Vestmannaeyingum hefir verið ætlað að greiða til þessarar eftirlitsstarfsemi, og sem þeir hafa greitt nokkurnveginn; ég held, að við séum aðeins á eftir um eitt ár nú. Nú sé ég, að ekki er gert ráð fyrir í till. þeim, sem hér liggja fyrir, að neitt sérstakt gjald sé greitt fyrir þá gæzlu, sem þar er farið fram á. Þetta er mjög eðlilegt, því bæði hér við Faxaflóa, Vestmannaeyjar og víðar stunda bátar alstaðar að af landinu veiðar, svo að öll héruð landsins hafa þar hagsmuna að gæta. Mér var falið af bæjarstj. Vestmannaeyjakaupstaðar að reyna að fá þetta gjald Vestmannaeyinga niður fært eða fellt niður með öllu. Mun ég ræða það mál við flm. þessara þáltill. og sjútvn., að Vestmannaeyingar verði gerðir jafnir öðrum landsmönnum í þessu efni, þannig að ef samskonar gæzla verður tekin upp á öðrum stöðum án þess sérstakt gjald komi fyrir, þá fái Vestmannaeyingar að njóta sömu hlunninda. Þykist ég mega vænta velvilja þings og stj. í þessu máli, þar sem vitanlegt er, að við Vestmannaeyingar höfum lagt mjög mikið á okkur til þess að halda þessari starfsemi í horfinu á undanförnum árum. Þessa vildi ég láta getið þegar við þessa umr.