29.05.1933
Efri deild: 83. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 308 í D-deild Alþingistíðinda. (2431)

195. mál, Þingvallaprestakall

Flm. (Guðrún Lárusdóttir):

Eins og ég bjóst við, þá var ræða hv. 5. landsk. eintómur útúrsnúningur frá aðalefninu. Hann lét svo, að deilan stæði um það, hvort eigi að friða Þingvöll eða ekki. En hv. þm. veit vel, að þetta er ekki satt; deilan stendur ekki um það. Það er því ástæðulaust fyrir hv. þm. að vera alltaf að hamra á því, að samþykkt þáltill. sé sama og að rífa niður friðunarstarfið á Þingvöllum. Ég hefi gert ljósa grein fyrir því, hvað fyrir mér vakir, og ég hygg, að ég þurfi ekki að taka það fram oftar en ég hefi þegar gert. Og því, að mér sé borið það á brýn hér á hinu háa Alþingi, að ég vilji rífa niður friðunarstarfið á Þingvöllum, vil ég algerlega vísa heim til föðurhúsanna. Það, sem verið er að tala um, er ekki annað en þetta: á að taka tillit til óska safnaðarins, sem samkv. sínum fyllsta rétti fer fram á að hafa prest í prestakalli, sem ekki hefir verið lagt niður að lögum. Ég held því, að flestir muni sjá, að það er lítil sanngirni í því að halda þessu svo fast fram eins og hv. 5. landsk. hefir gert, að ég sé að veðsetja friðunarstarfið á Þingvöllum. Það er langur vegur frá því, og ég vona, að hv. dm. sjái það með mér, að ég fer ekki fram á, að raskað sé eða rótað neitt við hví, sem þar hefir verið starfað, þó ég vilji halda fram rétti safnaðarins.

Hv. þm. kvað harðan dóm upp yfir öllum prestum, sem um þúsund ára skeið hafa starfað á Þingvöllum, og dómur hans var fólginn í þessum orðum, sem ég skrifaði hjá mér: „Hið eina lífræna, sem eftir þá lifir eftir þúsund ára starf, eru trjáhríslurnar, sem síra Jón Thorsteinsson gróðursetti við húsið á Þingvöllum“.

Ég kalla þetta harðan dóm, og vil bæta því við, að hér kemur skýrt fram skilningur hv. þm. á andlegri starfsemi presta. Og ég vil einnig minna hv. þm. á það, að einhversstaðar standa þessi orð: Dæmið ekki, svo þér verðið ekki dæmdir. Því líkur dómur og þér fellið yfir öðrum, mun yfir yður felldur verða. Ég hygg, að þessi orð hafi svo oft sannað sjálf sig, að ég þurfi engu við þau að bæta, en ég vil bara segja það, að ég hygg, að engum, hvorki hv. þm. né öðrum, sé til heiðurs að hnýta í látna menn. Hv. þm. stimplaði það skáld, sem ort hefir flesta sálmana í sálmabókinni, þeir sem kunnugir eru sálmabókinni, vita, hver þar á flesta sálmana, og er ekki um það að villast, hver það er, sem hv. þm. telur stærsta leirskáldið. Ég ætla mér ekki að fara að meta skáldlegt gildi andlegra ljóða þessa manns, en svo mikið vil ég segja, og það í fullri alvöru, að sálmar þessa manns hafa huggað marga hrellda sál á raunastundum lífsins, og hver veit nema sál hv. þm. eigi eftir að finna frið og huggun í þessum ljóðum. Hver veit? Enginn veit sína æfina fyrr en öll er.

Þá var hv. þm. það enginn smáræðis fengur, þegar annar þm. gekk að eyra hans og hvíslaði því að honum, að einu sinni hefði prestur í Sauðanesi látið auglýsa, að hann gæfi ekki kaffi við kirkju. Ég greip þá fram í, en það er nú víst ekki kurteist eða samboðið hinu háa Alþingi, og sagði þetta vera ósatt. En hv. þm. lagði þá aðeins þyngri áherzlu á orð sín og nefndi nafn prestsins, Jóns Halldórssonar, sem var prestur og prófastur í Sauðanesi, og sagði, að það hefði einmitt þm. verið að segja sér það núna á þessari stundu. Út af þessu leyfði ég mér að senda svo hljóðandi skeyti málsmetandi mönnum á Þórshöfn: Á Alþingi dag sagði þingmaður sr. Jón Halldórsson Sauðanesi hefði auglýst, að kirkjugestir fengju ekki kaffi. Er þetta satt? Svar óskast morgun undirritað fullum nöfnum kunnugra“.

Mér þótti það ekki skipta svo litlu máli, að fá sannleikann fram hér. Símskeytið, sem ég fékk, hljóðaði svo: „Vegna ummæla á Alþingi lýsum við yfir, að heimili prófasts Jóns Halldórssonar var ætið opið öllum aðkomandi sóknabörnum og öðrum, eins og hver ætti þar föður heim að sækja. Algerlega tilhæfulaust hann hafi nokkurn tíma auglýst kirkjugestum yrði ekki gefið kaffi, utan einu sinni, vegna sykurleysis, enda heimilið annálað fyrir gestrisni og höfðingsskap“. Herborg Friðriksdóttir, Guðmundur Vilhjálmsson, Syðra-Lóni, Stefanía Friðriksdóttir, Salome Jónasdóttir, Jón Jónasson, Ytra-Lóni, Matthildur Jóhannesdóttir, Sigríður Jónsdóttir, Guðrún Jóhannesdóttir, Jónas Aðalmundarson, Aðalmundur Jónsson, Kristján Jónsson, Eldjárnsstöðum, Sigurður Sigvaldason, Grund, Jónas Helgason, Ásseli, Margrét Halldórsdóttir, Arnþrúður Daníelsdóttir, Arnþrúður Guðmundsd., Halldór Benediktsson, Guðmundur Björnsson, Hallgilsstöðum, Dýrleif Kristjánsdóttir, Halldóra Halldórsdóttir, Kristján Halldórsson, Þorsteinn Einarsson, Syðri-Brekkum, Davíð Vilhjálmsson, Sigurður Magnússon, Syðri-Brekkum, Ingimar Baldvinsson, Jónínu Kristjánsdóttir, Ásta Vigfúsdóttir, Ása Aðalmundardóttir, Jóhann Tryggvason, Ari Jóhannesson, Sigríður Þorsteinsdóttir, Jóhannes Jóhannesson, Margrét Metúsalemsdóttir, Þorvaldur Pálsson, Þórshöfn.

Alls hafa undirritað og mótmælt á annað hundrað. Undirskriftirnar sendast með Esju. — Jón Björnsson“.

Réttar undirskriftir staðfestir Ingimar Baldvinsson stöðvarstjóri.

Það kann að vera, að einhverjir hv. þm. séu svo skapi farnir, að þeim finnist það broslegt, að þm. reynir að verja sig og látinn ættingja sinn með því að leita vitnisburðar, en ég er ekki svo skapi farin, að ég geti hlegið að sannleikanum, í hvaða mynd sem hann birtist, og þó að þetta sé ekki stórvægilegt atriði, þá sýnir það þó sannleikann. Og þó að hv. 5. landsk. hafi ekki mikið álít á íslenzkum prestum samkv. orðum hans um þúsund ára starfsemi þeirra á Þingvöllum, þá eru til íslenzkir bændur, sem ekki láta það orðalaust viðgangast, ef hnýtt er í minningu látins prests þeirra.

Hv. þm. sagði eina setningu, sem ég hjó eftir, ekki þó af því, að hún væri svo merkileg í sjálfu sér. Hann var að tala um Sigrid Undset og fannst það í raun og veru hlægilegt að hugsa sér slíka konu á tali við íslenzkan prest! Mér skildist á hv. þm., að það væri svo mikill munur á þessari konu og prestunum hér. En ég vil spyrja hv. þm., í hverju hann álíti, að ávextir sannrar menningar eigi að koma í ljós. Í hroka og gikkshætti? Nei, ég hygg, að sönn menntun komi fram í því, að maður viðurkenni bæði í framferði sínu og viðtali, að því meir sem hann veit, því betur finnur hann til þess, hve lítið hann veit, og ég hygg, að Nobelsverðlaunamenn séu engin undantekning frá því, og ég ætlast til þess, að þeir skari fram úr öðrum með lítillæti, sannri auðmýkt og hógværð, því það eru fegurstu ávextir sannrar menntunar.

Þá kem ég að því, sem ég hefði helzt ekki viljað fara út í, en ég neyðist til þess, af því að hv. þm. blandaði fátækrastjórn Reykjavíkur inn í búskapinn á Svartagili. Ég hefði m. a. viljað hlífa manninum, af því að búskapur hans hefir gengið illa. Það var heldur ekki við öðru að búast á þessu harðbalakoti.

En mér ofbauð, að það skyldi vera byggt hús á slíkum stað, þar sem varla kemur stingandi strá upp úr jörðu.

Viðvíkjandi því, sem hv. þm. sagði um úttekt þessa manns í reikning bæjarins, sem hefði verið mest púðursykur og ger, þá get ég lýst því yfir, að það eru rakalaus ósannindi. Hv. þm. er velkomið að fara niður á bæjarstjórnarskrifstofu og athuga úttekt þessa fátæka manns fyrir bæjarfé. Ég gat ekki farið að leggja reikningana fram, því ég vildi hlífa manninum í lengstu lög, og ég tel engan varða um, hvað hann hefir fengið til styrks sér og sínum. En hv. þm. vildi það ekki, og það lá í hlutarins eðli, að ég yrði að taka þetta upp og hreinsa heiður fátækranefndarinnar fyrir þeim áburði, að hún standi fyrir því, að keypt sé efni til bruggunar.

Að lokum talaði hv. þm. um það, að umsjónarmaður Þingvalla ætti þakkir skilið fyrir verk sitt, og skal ég ekki hafa af honum neinn heiður í því. Ég veit, að hann er áhugasamur, en ég held, að það sé annar maður, sem á meiri þakkir skilið, og það er Matthías Þórðarson fornminjavörður. Hann var búinn að starfa mikið á Þingvöllum áður en hv. 5. landsk. kom til skjalanna og sá umsjónarmaður, sem hann réð að Þingvöllum. Hefði Matthías Þórðarson verið látinn ráða meiru, þá hugsa ég helzt, að tilkostnaðurinn hefði orðið minni og allt fyrirkomulag einfaldara.

Auðvitað kennir hv. þm. Reykvíkingum um allt ósamkomulagið á Þingvöllum. Það var ekki nema það, sem maður gat búizt við. Og í því sambandi fór hann nokkrum vel völdum orðum um „vini“ mína, „svindlarana“ í „fínu villunum“. En þar auglýsti hv. þm. bezt fáfræði sína um mig og mína vini. Þeir búa fæstir í fínum „villum“. Jafnframt skoraði hann á mig að játa þessa ríku vini mína aura saman í kirkju á staðnum, en þá gleymdist hv. þm., að kirkjan á Þingvöllum er ríkiseign, og það er ríkið, sem á að sjá um hana.

Annars á ég erfitt með að skilja, hverskonar fítungur hleypur í hv. þm. út af þessu og hvers vegna honum er stríðni í því, að prestakallið verði veitt og söfnuðurinn fái að hafa prestinn sinn hjá sér, eins og hann hefir haft um allar þessar aldir, frá því fyrst að prestakall varð til á Þingvöllum, sem ég hygg að verið hafi árið 1175.

En samt sem áður vil ég unna hv. þm. þess sannmælis, að honum er annt um friðunarstarfið á Þingvöllum. Okkur er báðum annt um friðunarstarfið, en mér er einnig annt um andlegu hlið málsins, að þessi afskekkti söfnuður, sem býr uppi á fjöllum, fái að njóta starfs góðs prests, sem sé vinur safnaðarins og sálusorgari. Ég fæ ekki skilið, hvers vegna við hv. þm. fáum ekki mætzt á miðri leið með þessi áhugamál okkar beggja, hann með áhugamál sitt fyrir friðuninni og ég með áhugamál mitt, sem gengur í sömu átt, en aðeins það lengra, að ég hugsa einnig um andlegu hlið málsins. Ég ætla því að vona, að við getum viðurkennt hvors annars rétt í aðalatriðum málsins, þó okkur hafi borið þetta á milli.

Hv. 2. þm. Eyf. mælti hér fáein orð, og mér heyrðist á honum, að hann óttaðist, að á bak við þessa till. lægi eitthvað persónulegt. Ég fæ ekki skilið, hvað hann á við með því, eða hvaða ástæðu hann telur til þess, að ég beri fram þessa þáltill. af einhverjum persónulegum ástæðum. Ég vil biðja hv. þm. að útlista það fyrir mér, hvað fyrir honum vakir. Hv. þm. bar saman aðstöðu Þingvallaprestakalls og prestakalls norður í landi, þar sem erfitt væri um prestsþjónustu. En hvað sem því líður, þá hljóta Þingvellir alltaf að hafa sérstöðu í þessum efnum, þar sem kristni var þar lögtekin og Alþingi háð um nær þúsund ára skeið. Það er því ekki hægt með sanngirni að bera saman venjulegt prestakall við þetta prestakall. Mér finnst það liggja í hlutarins eðli og kalli nánast á Íslendingseðli okkar sjálfra að hafa þarna prest, fulltrúa þeirrar stofnunar, sem þar var fyrst stofnuð.

Þessi dagskrártill., sem hv. þm. ber fram, er kannske betri en ekki neitt. Það er ekki nema satt, að jarðarafnot, sem prestssetrinu fylgja, heyra undir Þingvallanefnd og það verði ekki hjá því komizt að semja um afnot bújarðarinnar. En ég held ekki, að það sé nein ástæða til að halda því fram, að það þurfi að semja um prestssetrið sjálft, eins og fram kemur í dagskrártill. Prestssetrið heyrir til prestakallinu og Þingvallanefnd hefir ekki frekar umráð yfir prestssetrinu en yfir prestakallinu sjálfu og kirkjunni, enda hefir Þingvallanefndin ekki haldið því fram, svo ég viti til, að hún ráði neinu um kirkjuna sjálfa. Hvað d. gerir við dagskrártill., ræður hún sjálf. Ég hefi sagt mitt álit á henni, að ég álít hana betri en ekki neitt. En hvers vegna ekki að samþ. þáltill. eins og hún liggur fyrir? Ég sé ekki, að málið sé nær takmarki sínu fyrir það, þó dagskrártill. sé samþ., enda þótt ég játi, að hún hnígur í sömu átt og þáltill. þó ég hinsvegar geti ekki gefið henni atkv. mitt.