29.05.1933
Efri deild: 83. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 313 í D-deild Alþingistíðinda. (2432)
195. mál, Þingvallaprestakall
Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):
Ég skal ekki tefja mikið umr. um þetta mál. En út af orðum hv. 5. landsk. vildi ég segja það, að það er ekki einróma álit Þingvallanefndar, að hún hafi eins óskorað umráð yfir öllu, sem er á Þingvöllum, eins og hann vildi vera láta. Ég hefi lesið vel og vandlega þessi l. um friðun Þingvalla, og ég finn hvergi, að þeir séu friðaðir fyrir prestum. Það getur ekki komið til mála, að það sé óheimilt að setja þar prest vegna ákvæða l. Og ég verð að segja, að úr því að ríkið er búið að byggja þarna stóra og dýra byggingu og notar dýran umsjónarmann, þá sé ég ekki, hvað er á móti því að hafa þarna prest. Húsið er meira að segja svo stórt, að bæði prestur og umsjónarmaður geta verið þar. Ég tala ekki um þá firru, að það sé Þingvallanefnd, sem eigi að ráða yfir því, hvaða gestir landsins væru þar. Það er enginn nema ríkisstj., sem ræður því, hverjir búa þar sem gestir landsins. Það var svo í ráðh.tíð hv. þm., að hann réð því, a. m. k. án þess nokkru sinni að bera það undir mig, og mér skildist á ræðu hans áðan, að hann teldi, að hann ætti eftir sem áður að ráða því, þó að hann ætti ekki sæti í stj. Það kemur svipað fram hjá hv. þm. nú eins og kom fram viðvíkjandi hæstaréttarfrv. í fyrra. Meðan hann var dómsmrh. vildi hann hafa það undir dómsmrh. að ráða öllu um, hverjir væru dómarar, en þegar hann er ekki lengur ráðh., þá flytur hann till. um, að það sé þingið, sem eigi að kjósa þá.
Hv. þm. talaði um það, að ekki mætti vera kúabú á Þingvöllum. En hvar er það bannað í friðunarl.? Ég veit ekki betur en að bændunum í Skógarkoti, Hrauntúni og Vatnskoti sé heimilað að hafa kýr. En svo væri líka hugsanlegt að hafa þar prest, án þess að setja þar á stofn kúabú um leið, svo að þessi röksemdafærsla um kúabú útilokar alls ekki það, að prestur sé fenginn á staðinn.
Viðvíkjandi þeim orðum hv. þm., að bændurnir í Hrauntúni og Skógarkoti hefðu brotið friðunarl., þá vil ég upplýsa, að þetta er rangt. Þeir hafa ekki gert annað en að láta nokkrar kindur vera á gjöf í húsum inni. En Þingvallan. sjálf hefir vafalaust brotið friðunarl. með því að láta þau ekki koma til framkvæmda á réttum tíma. Ég á sæti í Þingvallan., og ég hefi ekki orðið þess var, að hún gerði mikið. Fundir hafa ekki verið haldnir síðan 1931 fyrr en um daginn, að einhver fjörkippur kom í hv. 5. landsk., sem er form. n., og hafa 2-3 fundir verið haldnir síðan. — Um kostnaðinn við aðgerðirnar á Þingvöllum vil ég sem minnst tala. Þar hefir verið sóað hundruðum þúsunda króna í ýmsar framkvæmdir, og eru margar þeirra svo ópraktistar, að einsdæmi munu vera. T. t. hvað girðingunni viðvíkur, þá segja bændur í Þingvallasveit, að aldrei hafi verið eins margt fé á friðlýsta svæðinu og síðastl. sumar. Því gengur vel að komast inn, hliðin eru skilin eftir opin af ferðamönnum, eins og alltaf var spáð, en svo finnur féð ekki hliðin aftur, og flækist í girðingunni allt sumarið. Það er svo yfirleitt um þetta mál, að það er ekki eins glæsilegt, ef það er skoðað niður í kjölinn, og hv. 5. landsk. vill láta líta út hér í þingsalnum.