29.05.1933
Efri deild: 83. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 318 í D-deild Alþingistíðinda. (2435)
195. mál, Þingvallaprestakall
Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):
Hv. 2. landsk. sagði í upphafi ræðu sinnar, að það ætti ekki að vera prestur á Þingvöllum, fyrst það stæði ekki í friðunarl. Þingvalla. Það standa ekki nein ákvæði um presta í þessum l., en ég vil benda hv. þm. á 1. nr. 45 frá 16. nóv. 1907. Þar eru talin upp þau prestaköll, er skuli vera á Íslandi. Og þar stendur skýrum stöfum: Þingvellir: Þingvalla- og Úlfljótsvatnssóknir. Og ég vil spyrja hv. 2. landsk.: Hvenær hafa þessi 1. verið numin úr gildi? Mér vitanlega aldrei. Og því aðeins, að Þingvallafriðunarl. brytu í bága við þessi 1., hefði sú skoðun, að Þingvellir væru friðaðir fyrir prestum, við eitthvað að styðjast.
Það er nokkuð langt seilzt hjá hv. þm., að blanda ríkislögreglunni inn í umr. um þetta mál. Ég hefi aldrei viðurkennt, að það fé, sem á síðastl. ári var veitt til varalögreglunnar í Reykjavík, hafi verið tekið í heimildarleysi. Ég álít það þvert á móti fyrstu skyldu hverrar stj. að gera allar nauðsynlegar varnarráðstafanir á óróatímum.
Viðvíkjandi brotum á friðunarl. Þingvalla er það að segja, að það var einmitt ég, sem kom í veg fyrir, að farið væri í mál út af mjög vafasömum „brotum“ á þessum 1., og fylgdi hv. 2. landsk. mér þá að málum í n.
En hvað viðkemur umráðunum yfir húsum ríkisins á Þingvöllum, er það auðvitað fjarstæða að halda því fram, að Þingvallan. gæti meinað stj. að hafa þar þá gesti, sem henni sýnist. Það leiðir auðvitað af sjálfu sér, að stj. hefir heimild til þess að heimta, að gestir landsins fái að vera í þessu húsi á Þingvöllum. Það er náttúrlega rétt hjá hv. þm., að ég hefi ávallt beygt mig fyrir vilja meiri hl. nefndarinnar. En framkvæmdir hennar hafa oftast verið gerðar að óvilja mínum og gegn mínum andmælum.