29.05.1933
Efri deild: 83. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 332 í D-deild Alþingistíðinda. (2444)
195. mál, Þingvallaprestakall
Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):
Ég viðurkenni, að ég hefi meiri möguleika til þess að skýra lög en hv. 2. landsk., og þess vegna er miklu meira að marka það, sem ég hefi sagt um þetta, enda staðfesti hann það, því að hann talaði um, að vald Þingvallanefndar væri yfir landinu, og það er rétt, en hún ræður ekki yfir húsunum. Það er líka rétt, það tók ég fram. (JBald: Útúrsnúningur). En viðvíkjandi þessu eina húsi, sem deilan er um, þá má benda á, að húsið var byggt eftir að lögin voru sett og með samþykki n., en sá sem byggir hefir síðan umráð yfir því, sem byggt er. Og það er ríkisstj. sem byggði. Þetta vona ég, að hv. 2. landsk. skilji. (JBald: Þingvallan. byggði, en ríkissjóður greiddi). Það var Alþingishátíðanefndin, sem lét byggja húsið. (JBald: Með samþykki nefndarinnar).