02.06.1933
Sameinað þing: 9. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 335 í D-deild Alþingistíðinda. (2452)

199. mál, réttur alþingismanna til að athuga fylgiskjöl með reikningum ríkisins

Flm. (Héðinn Valdimarsson):

Hv. þm. er kunnugt um, hvaða tilefni er til þessarar till., og þarf ég ekki að ræða það mjög lengi. Það er tilkomið út af beiðni, sem ég sendi til hæstv. dómsmrh. um að fá sundurliðaðan kostnað við ríkislögregluna, ásamt nöfnum mannanna, sem í henni eru, og hve mikið hverjum hafi verið greitt, og annan kostnað nákvæmlega sundurliðaðan. Mér skilst, að það muni vera í fyrsta sinn, sem þingmanni er neitað um slíkt, og þær ástæður, sem hæstv. dómsmrh. hefir borið fyrir sig, hafa ekki við nein rök að styðjast. Ég hefi því borið fram þessa till. um rétt alþingismanna til að hafa aðgang að fylgiskjölum með greiðslum úr ríkissjóði. En þessi réttur er þó takmarkaður við þingtímann, og er það í rauninni of vægt í farið.

Ég vænti þess, að þingmenn meti þó einhvers rétt þeirra manna, sem þetta þing sitja, og sjái, að það er nokkurs virði að geta frá fyrstu hönd kynnt sér það, sem gert er, með því að athuga fylgiskjölin, og samþykki því þessa till.