31.03.1933
Neðri deild: 41. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 199 í B-deild Alþingistíðinda. (246)
1. mál, fjárlög 1934
Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):
Mér gerir það ekkert til, þótt fáir hv. þdm. hlusti á mál mitt, því ég ætla ekki annað að gera en að biðja hv. þm. Str., frsm. síðari kafla fjárlfrv., um að taka aftur 61. brtt. á þskj. 199, sem er um það að kaupa fyrir fasteignamatsverð íbúðarhús sýslumannsins í Borgarnesi. Það er auðskilið mál, að ekki er til neins að gefa stj. heimild til að kaupa þetta hús, ef kaupverðið má ekki fara yfir fasteignamatsverð. Þótt að þessum sýslumanni þrýsti nú fjárhagsörðugleikar, þá er samt eigi örvænt, að hann geti selt hús sitt hærra verði á annan hátt. Og þótt svo væri ekki, þá gagnar honum ekki neitt slík sala, sem heimiluð er með brtt. fjvn. Vona ég því, að hv. frsm. hafi ekki á móti því að taka till. aftur. — Hefi ég svo ekki fleira að segja að sinni.