31.03.1933
Neðri deild: 41. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 200 í B-deild Alþingistíðinda. (247)
1. mál, fjárlög 1934
Bjarni Ásgeirsson:
Ég á hér nokkrar brtt. og vildi sem aðrir hv. þm. fylgja þeim úr hlaði með nokkrum orðum. Er að vísu ekki árennilegt að tala, þar sem sæti hv. þm. þessarar d. eru nú svo mjög fáskipuð. Þætti mér elskulegt, ef „litla þingið“, sem er að halda fund í ráðherraherberginu, fengist til að hlusta á mál mitt, því till. mínar eru svo sjálfsagðar, að ég er viss um, að allir þeir, sem mál mitt heyra, munu greiða atkv. með þeim. (TrÞ: Er það nú víst?). Já, það er alveg áreiðanlegt!
Að hinni fyrstu er ég aðalflm., en auk mín flytja þeir hv. þm. G.-K. og hv. þm. Seyðf. þá brtt. Hún er um það, að greiða til glímufélagsins Ármanns, upp í halla af ferð glímuflokks til Stokkhólms í tilefni af íslenzku vikunni þar, 1500 kr. Eins og kunnugt er, var að tilhlutun Norræna félagsins haldin íslenzk vika í Stokkhólmi á síðasta hausti. Slíkar norrænar vikur, fyrir Finna, Dani og Norðmenn, hafa verið haldnar undanfarin ár. Svíar sýndu okkur nú þá vinsemd að halda slíka íslenzka kynnisviku fyrir Ísland, sem í engu stóð hinum að baki. Og ég er viss um, að sú vika hefir ekki gert okkur Íslendingum minna gagn en hinar vikurnar hinum þjóðunum. Og þeim mun meiri þörf höfum við Íslendingar fyrir slíka kynningu, sem við erum minna þekktir en hinar þjóðirnar.
Vanþekking á Íslandi og Íslendingum er alveg ótrúlega mikil í Svíþjóð, sem vitanlega víða annarsstaðar. Almenningur þar veit ekkert, hvort heldur hér búa Eskimóar eða siðuð menningarþjóð. Er því ekki minnsti vafi, að íslenzka vikan hefir átt stóran þátt í því að kynna okkur þar. Og í því átti glímufélagið Ármann áreiðanlega mestan og beztan þátt. Ég var staddur á íslenzku vikunni og get því af eigin sjón og áheyrn borið um það ómetanlega gagn og þann mikla sóma, sem þessi djarfi og frækni glímuflokkur gerði íslenzku þjóðinni þar. Kostnaður flokksins af þessari Svíþjóðarför var 5000 kr. Upp í það hafði hann aflað sér 1000 kr. með íþróttasýningu áður en hann lagði á stað. Tekjuhalli af ferðinni var því 4000 kr. Félagið, sem er fátækt, fer nú fram á, að ríkissjóður leggi fram 1500 kr. upp í þennan tekjuhalla. Ef metið er að nokkru það mikla gagn, sem var að ferðinni, má segja, að hóglega sé farið í þessari beiðni. Mæli ég því hið bezta með, að þessi upphæð verði veitt.
Næst vil ég minnast á XXXV. brtt. á þskj. 296, sem flutt er af landbn. Frsm., hv. þm. Borgf., er ekki viðstaddur, og vil ég því hlaupa í skarðið og skýra brtt. með nokkrum orðum. Þessi brtt. er flutt eftir ósk frá n., sem starfar í búnaðarþinginu. Er hún gerð til þess, að hægt verði að veita samskonar styrk og áður, vegna framkvæmdar á l. um verzlun tilbúins áburðar.
Eins og allir vita, hefir ræktun verið stórstígari undanfarin ár heldur en hún hefir verið um aldir áður. Og það er líka kunnugt, að einn nauðsynlegasti liðurinn í þessari stórfelldu ræktun er tilbúinn áburður. Það er langt frá því, að hinn innlendi húsdýraáburður sé nægur til að viðhalda hinu ræktaða landi, hvað þá til stórfelldrar nýræktar. Verður því að fullnægja áburðarþörfinni með tilbúnum áburði að meira eða minna leyti. Þegar nú það fer saman, að afurðaverð landbúnaðarins hefir fallið um meira en helming, en áburður frá útlöndum hækkað, sérstaklega frá Þýzkalandi vegna gengisbreytinga, þá stefnir að hreinum voða um, að hægt verði að viðhalda ræktaða landinu. Þar sem því verður að telja ákjósanlegt, að bændur afli sér tilbúins áburðar, er hreinasta neyð að svipta þá þeim styrk, er þeir hafa fengið til áburðarkaupa. Í fjárlfrv. er jarðræktarstyrkurinn áætlaður 400000 kr. En nú liggja fyrir upplýsingar um það, að svo mjög muni draga úr ræktun nú, að litlar líkur séu fyrir hendi um, að þessi upphæð verði öll notuð. Hefir því orðið samkomulag innan landbn. að leggja til, að styrkur þessi verði lækkaður í fjárl. um 5000 kr., en styrkurinn til áburðarkaupa hækkaður um sömu upphæð. Vona ég, að þetta þyki sanngjörn till., þegar sjáanlegt er, að bændur hafa ekki kraft til að leggja í nýrækt, að þá verði þeir frekar styrktir til þess að halda því við, sem ræktað er. Það væri hörmulegt, ef ræktun síðustu ára stæði arðlaus vegna áburðarskorts. Er því nauðsynlegt að styðja að því, að bændur fái vexti af þeim peningum, er lagðir hafa verið í ræktunina. Landbn. leggur að vísu enga áherzlu á, að liðurinn vegna jarðræktar verði lækkaður. En við bárum þó þessa lækkun fram, bæði vegna jafnaðar fjárl. og þó einkum til þess að undirstrika ástandið eins og það er — það, að bændurnir berjast nú í bökkum um að halda ræktaða landinu við.
Þá kem ég að XLIII. brtt. á sama þskj. Er hún um það, að hækka tillagið til slysavarna um 7000 kr., og að þeim 7000 kr. verði varið til símalagningar að Hjörsey og Straumfirði á Mýrum. Þessir tveir staðir eru eyjar, sem eru þó svo stutt frá landi, að hægt er að leggja þangað síma. En framundan þeim báðum er svo hættulegur skerjagarður, að óvíða, að söndunum austurfrá máske undanteknum, hafa orðið fleiri skipströnd undanfarin ár. Skal ég, máli mínu til sönnunar, lesa upp lista yfir þau skip, sem hafa farizt þarna síðan árið 1906, en þau eru þessi:
1. Hinn 7. apríl 1906 fórst íslenzka fiskiskipið „Emelie“ frá Reykjavík í ofsaroki á vestan með óvenjumiklu brimi á skerjunum út af Hjörsey á Mýrum. Skipverjar fórust allir, 24 að tölu.
2. Sama dag fórst einnig íslenzka fiskiskipið „Sophie Withley“ frá Reykjavík þar skammt frá með öllum mönnum, 24 að tölu.
3. Hinn 5. maí 1908 strönduðu 2 franskar fiskiskútur á skerjunum inn af Þormóðsskeri í norðanstormi og kafaldsbyl. Skipshöfninni, 26 mönnum, af annari skútunni bjargaði norskt línuveiðagufuskip, er hélt til í Hafnarfirði.
4. Skipshöfnin af hinni, 19 manns, fór í skipsbátinn og komst eftir 10 klukkutíma hrakninga til Akraness, og voru þá mjög illa til reika.
5. Hinn 1. júlí 1910 fórst mótorbátur úr Reykjavík við Mýrar og drukknuðu allir, sem á voru, 3 að tölu.
6. Hinn 14. janúar fórst íslenzka seglskipið „Hekla“ frá Reykjavík við Mýrar, og drukknuðu skipverjar allir, 5 að tölu.
7. Hinn 16. ágúst 1913 strandaði enski togarinn „Drax“ á skerjunum skammt utan við Hjörsey. Skipverjar björguðust allir í land á skipsbátnum með aðstoð manna úr landi.
8. Hinn 28. febr. 1918 strandaði íslenzka fiskveiðagufuskipið „Erling“ frá Álftafirði á skeri skammt frá Þormóðsskeri. Skipið komst á flot aftur litlu síðar, lítið skemmt.
9. Hinn 22. október 1919 strandaði norska seglskipið „Activ“ frá Marstal á skeri út af Skáley, í stormi og brimi. Skipverjar fórust allir, 5 að tölu.
10. Hinn 30. nóv. 1923 fórst ísl. vélbáturinn „Baldur“ frá Reykjavík í suðvestanstormi við Mýrar. Skipverjar allir, 5 að tölu, drukknuðu.
11. Hinn 11. des. 1926 fórst norska fiskflutningagufuskipið „Balholm“ frá Bergen á skerjunum út af Hjörsey á Mýrum, í vestanstormi og óvenjumiklu brimi. Skipverjar allir, 19 að tölu, og 5 farþegar, eða alls 24 menn, drukknuðu.
12. Hinn 16. jan. 1928 strandaði enski togarinn „Spider“ frá Grimsby á skerjunum út og vestur af Hjörsey á Mýrum. Skipið losnaði af skerinu aftur, og var því leiðbeint út úr skerjagarðinum af mönnum úr Hjörsey, er fóru með það til Rvíkur, þar sem gert var við skipið.
13. Árið 1928 strandaði þýzki togarinn „Schulmeyer“ við Hjörsey á Mýrum. Skipverjar björguðust allir í land með aðstoð manna úr landi, en skipið eyðilagðist.
14. Hinn 17. febr. 1930 strandaði íslenzki vélbáturinn „Kári“ frá Akranesi við Hjörsey á Mýrum í vestanstormi og brimi. Skipverjar björguðust allir í land, 5 að tölu, með aðstoð manna úr landi, en skipið eyðilagðist.
15. Hinn 21. marz 1930 strandaði enski togarinn „Edwardian“ frá Grimsby í norðanstormi á skeri út af Mýrum, vestan við Þormóðssker. Skipverjar yfirgáfu skipið á skipsbátnum og komust eftir mikla hrakninga til Sandgerðis, og var þá einn skipverja dáinn af vosbúð og kulda og margir hinna meira og minna kaldir. Skipið eyðilagðist.
16. 1933 villtist íslenzki togarinn „Walpole“ frá Hafnarfirði inn í skerjagarðinn út af Mýrum, og var honum leiðbeint út úr skerjagarðinum af manni úr Hjörsey, sem síðan fylgdi honum til Hafnarfjarðar.
Eins og sést af þessum lista, þá er slysahætta geysimikil þarna. Ég fullyrði alls ekki, að öllum þeim mannslífum, sem þarna hafa týnzt, hefði verið bjargað, ef sími hefði verið kominn á þennan stað, en það er þó engum vafa bundið, að eitt allra bezta ráðið til að varna slysum á þessum hættulega stað, er að fá síma út í Hjörsey, því að þaðan sést bezt til skipa, og getur verið ómögulegt að koma við björgun úr landi, en mætti aftur á móti koma boðum símleiðis til Reykjavíkur og fá þar skip til þess að leiðbeina þeim, er hjálpar þurfa, út úr þessum voða. Þetta erindi er flutt eftir beiðni Slysavarnafél. Íslands, og vil ég, með leyfi hæstv. forseta, lesa upp bréf, sem ég hefi fengið frá stjórn þess út af þessu máli. Bréfið hljóðar þannig:
„Reykjavík, 20. marz 1933.
Þegar stjórn Slysavarnafélags Íslands um vorið 1932 ákvað að koma upp fluglínustöð í Hjörey á Mýrum og fól erindreka sínum framkvæmdir á því, var honum jafnframt falið að athuga — eftir því sem kostur væri —, hvað líklegt mætti teljast, að helzt mundi að notum koma til þess að fyrirbyggja tjón á mönnum og skipum, er hrekja kynnu undan stormi og sjó upp að Mýrum. Á ferð sinni um Mýrar síðastl. sumar athugaði erindrekinn þetta nokkuð, eftir því sem við varð komið, og taldi hann það helzta, sem gera þyrfti og viðráðanlegt væri í þessum efnum, að fá síma í Hjörsey og að Straumi í Straumfirði. Með síma á þessum stöðum má kalla á hjálp frá Reykjavík, sem líklegt er, að komi fyrr að notum en þótt farið væri að safna saman mönnum frá fleiri bæjum á Mýrum til þess að manna út bát þar til hjálpar. Einnig hagar þar svo til, eins og kunnugir vita, að um fjöru eða lágsævi er oft ómögulegt að koma fram bát á Mýrunum, þar sem mest kann að vera þörfin og þá ekki um annað að gera en að bíða eftir aðfalli, en þá getur verið um seinan að veita hjálpina.
Slysavarnafélag Íslands vill því mæla hið bezta með því, að sími verði lagður hið allra fyrsta til ofangreindra staða, og leyfir sér að fara þess á leit við hæstv. Alþingi að veita fé til framkvæmda á því, að sími komist á annanhvorn staðinn nú á yfirstandandi ári. Virðingarfyllst. — F. h. Slysavarnafélags Íslands. — Þorsteinn Þorsteinsson. — Jón E. Bergsveinsson.“.
Það er enginn vafi á því, að slysahætta er þarna mikil og verður áfram. Sérstaklega vil ég benda á það í þessu sambandi, að Akurnesingar, sem hafa áður sótt til Sandgerðis, hafa nú á síðari árum breytt til og sótt mjög á miðin fyrir vestan Akranes og sunnan og vestan Mýrar. Þessir bátar eru því í mikilli hættu þarna og eiga það á hættu að lenda í skerjagarðinum, ef skyndileg vestanrok skella á, eins og oft vill verða. Ég tel því víst, að allir, sem hafa haft ástæður til að kynna sér þetta mál og þá nauðsyn, sem er til að reyna að fyrirhyggja skipskaða og manntjón á þessum stað, sjái sér fært að greiða þessari till. atkv.
Þá vil ég að síðustu minnast á LIII. brtt. á þskj. 296, þar sem lagt er til að heimila stj. að veita Ásmundi Sveinssyni myndhöggvara allt að 10 þús. kr. lán til að reisa sér vinnustofu, gegn þeim skilyrðum, er stj. ákveður, og má skipta útborgun lánsins á 3 ár.
Það þarf ekki að fara mörgum orðum um Ásmund Sveinsson; hann er nú orðinn þjóðkunnur maður og alþekktur meðal listamanna erlendis, þar sem hann hefir dvalið, sem er bæði á Norðurlöndum og í Frakklandi. Hann á ekki heldur langt að sækja listgáfu sína, því að allir hans ættmenn eru frábærlega hagir, og leikur allt í höndunum á þeim. Ásmundur hefir nú stundað nám erlendis í 10 ár, 6 ár í Stokkhólmi, 1 ár í Kaupmannahöfn og 3 ár í París. Auk þess hefir hann ferðazt um Þýzkaland og Grikkland til að kynna sér ýmislegt viðvíkjandi listum. Alstaðar, þar sem hann hefir sýnt eitthvað af sínum verkum, hefir hann hlotið mesta lof. Í Svíþjóð fékk hann heiðurspening skólans fyrir frammistöðu sína þar. Í Frakklandi hefir hann hlotið mesta lof listamanna, þegar hann hefir sýnt verk sín þar, en Frakkland er eins og kunnugt er miðstöð heimslistarinnar. Hann sýndi þar eitt sinn á stórri sýningu 4 myndir, en það er hámarkstala þeirra mynda, sem einn maður má sýna þar í einu. Og til dæmis um það, hve mikla eftirtekt myndir hans vöktu, er að stillt var út 5 myndum sem auglýsingu, og ein af þeim myndum var eftir Ásmund.
Ég vil í þessu sambandi leyfa mér að lesa upp ofurlítinn kafla úr þeim dómum, sem hann fékk fyrir þessa sýningu sína. Sést á því, hvaða álit helztu listdómarar heimsins hafa á þessum listamanni okkar:
„Á meðal þeirra erlendu listamanna, er lagt hafa sinn skerf til haustsýningarinnar, er Ásmundur Sveinsson manni einna ljósast fyrir hugskotssjónum, því að í list hans haldast í hendur alger vinnuleikni og hágöfugur fegurðarsmekkur. Hann er áreiðanlega álitlegastur norrænu myndhöggvaranna og hinn fremsti íslenzkra listamanna“.
„Hann hefir með óþreytandi elju keppt að hámarki tígulegrar fegurðar, og hefir þó einatt átt í vök að verjast og orðið að leggja ærið hart að sér, en köllun hans hefir líka verið sannhelg“.
„Á haustsýningunni hefir íslenzka þjóðsagan (Sæmundur á selnum) heillað alla skynbæra listamenn. Ásmundur Sveinsson er máttugur í list sinni, og í verkum hans brýzt það bezt fram, sem fegurst er“.
„List Ásmundar Sveinssonar er ósvikin og frumleg og skipar honum á bekk með hinum fremstu myndhöggvurum vorra tíma“.
Ég ætla ekki að lesa meira. Þetta nægir til að sýna, hverja dóma Ásmundur Sveinsson hefir fengið og hverja þekkingu og hæfileika hann hefir til að bera.
Nú er það vitanlegt, að kreppan kemur niður víðar en á atvinnuvegunum, og þá ekki sízt á listamönnunum, enda hefir Ásmundur átt við mikla fjárhagsörðugleika að búa. Nú á hann 50—60 myndir alls og hefir orðið að koma þeim til geymslu hér og þar, og eru sumir geymslustaðirnir svo slæmir, að myndirnar stórskemmast, ef ekki verður hægt að sjá þeim fyrir sæmilegri geymslustað.
Kona Ásmundar er einnig listfeng og vinnur því með honum að myndagerðinni. Ef þau nú fá þennan styrk, er það meiningin að byggja vinnustofu, sem um leið gæti orðið listasafn. Þar gæti hann gengið frá myndum sínum, þar til hann selur þær, sem hann kann að selja.
Ég orðaði till. þannig, að hann skyldi fá þetta lán gegn þeim skilyrðum, sem stj. setur. Ég ber fyllilega það traust til stj., að hún geri honum ekki örðugra um að fá þetta lán, ef þingið samþ. till., heldur en nauðsyn krefur.
Myndir Ásmundar eru svo mikil meistaraverk, að Alþingi getur ekki neitað honum um hús yfir þær. Við eigum nú okkur til mikils sóma annað safn, ekki óáþekkt þessu. Það er safn Einars Jónssonar. Það er óhætt að segja, að það safn vekur ekki hvað sízt aðdáun og eftirtekt þeirra mörgu gesta, sem koma hingað til að kynna sér land og þjóð. Væri mikilsvert fyrir okkur að búa nú svo í haginn fyrir þennan ágæta listamann, að hann gæti nú safnað saman þessum dýrmætu eignum, sem mölur og ryð fá ekki grandað. Mundi það verða landi og þjóð til mesta gagns og sóma.
Ég veit, að 10 þús. kr. er mikið fé, ekki sízt nú á þessum tímum, en sú fjárveiting ætti varla að geta eyðilagt fjárhag þjóðarbúsins, sérstaklega þegar tekið er tillit til þess, að skipta má útborgun þessa fjár niður á 3 ár; verður það vonandi ekki til mjög tilfinnanlegs baga fyrir þennan mann, því að líkur eru til, að hann gæti fengið bráðabirgðalán til að koma upp húsinu, ef hann mætti eiga von á fénu úr ríkissjóði næsta ár.
Ég hefi sýnt það með öðrum till. mínum, að ég kann fyllilega að meta það, sem er undirstaða undir velmegun þjóðarinnar. En það er sem betur fer ekki hægt að segja um mennina eins og segir í vísunni um álfana:
Hafa þeir bæði heyrn og mál,
hold og blóð með skinni,
vantar bara sjálfa sál, —
sá er hluturinn minni.
Maðurinn hefir bæði líkama og sál, og þegar allt kemur til alls, þá er sálin þó aðalatriðið. Þess vegna megum við ekki gleyma þörfum sálarinnar fremur en líkamans. Við verðum því að hlúa að listinni og megum ekki láta okkar fremstu snillinga, eins og Ásmund Sveinsson, verða úti andlega. Ég treysti því fastlega, að Alþingi bregðist ekki þessari skyldu sinni, en samþ. að styrkja þennan ágæta landa okkar.
Þá hefi ég minnzt á þær till., sem ég er aðalflm. að, en ég er meðflm., ásamt hv. þm. G.-K. að XXIV. till. á þskj. 296. Þar er lagt til, að Jóni Blöndal verði veittur 1200 kr. styrkur til lokanáms í hagfræði. Alþingi hefir áður veitt þessum manni styrk, og er það aðallega fyrir þá hjálp, sem hann hefir komizt áfram, því að hann er bláfátækur og hefir misst foreldra sína, sem annars hefðu hjálpað honum eftir mætti. Síðasta ár hefir hann átt við veikindi að stríða, en er nú að líkindum kominn til heilsu aftur. Vona ég, að hv. d. geti fallizt á að veita þessum efnilega manni þennan styrk, sem hér er farið fram á, því að sorglegt væri, ef hann yrði nú að hætta námi, þar sem hann vantar nú ekki nema herzlumuninn til að ljúka því.
Þá er ég sem sjútvnm. meðflm. að till., sem hv. 1. þm. S.-Dt. mælti fyrir, að veita Árna Friðrikssyni 1200 kr. vegna ritstarfa og fyrirlestra um fiskilíf og fiskiveiðar. Ég fer ekki að endurtaka orð hv. þm., en aðeins óska þess, að þingið líti með sanngirni á styrkbeiðni til þessa efnilega vísindamanns.
Ég ætla svo ekki að hafa fleiri orð um þessar till., en ég vona, þegar til atkvgr. kemur, að þeir, sem nú hafa heyrt mál mitt, hnippi í sessunauta sína og láti þá vita, hve góð mál það eru og nauðsynleg, sem ég hefi borið hér fram.