06.03.1933
Sameinað þing: 3. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 346 í D-deild Alþingistíðinda. (2472)

39. mál, ríkisféhirðisstarfið

Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Hv. 5. landsk. lét það í ljós, að hann byggði lítið á þeirri athugun, sem stj. mundi láta fara fram á þessu máli. Ég játa það, að trú stj. á það, að hér séu möguleikar fyrir miklum sparnaði, er ekki mikil. Hjá ríkisféhirði hefir ekki verið fjölgað fólki í tíð núv. stj. Allir starfsmenn þar eru arfur frá fráfarandi stj., sem hv. 5. landsk. sat í. Allir þeir, sem vinna við þessar stofnanir, unnu þar í tíð fráfarandi stj., og gerði hún engar ráðstafanir til sparnaðar á þessu sviði.

Það er rétt, að Landsbankinn hefir nú fleiri gjaldkera en áður, 2 fasta og einn til vara, en þeir hafa allir nóg að starfa fyrir bankann sjálfan.

Hvað mannahaldið hjá ríkisféh. snertir, þá hefir þar engin breyt. orðið á önnur en sú, að stúlka, sem unnið hefir að þessu starfi í 23 ár, hefir verið sett aðalgjaldkeri, en svo auðvitað bætt við einni stúlku í hennar stað til bráðabirgða, svo að hægt væri að anna störfunum. Það er rangt, að störf gjaldkera séu aðallega fólgin í því að sækja peninga í Landsbankann og afhenda þá, heldur eru þar samfara margþættir útreikningar og bókfærsla.

Hv. 5. landsk. taldi ekki ljóst af ræðu minni, hvort ég væri með eða móti þessari þáltill. hans. Ég þykist hafa sýnt fram á það, að möguleikarnir til sparnaðar eru ákaflega litlir, ef ekki engir, hvað þessar stofnanir snertir. Ég get því ekki séð, að hér sé um neina bjargræðisráðstöfun að ræða.