06.03.1933
Sameinað þing: 3. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 349 í D-deild Alþingistíðinda. (2477)

39. mál, ríkisféhirðisstarfið

Bjarni Ásgeirsson:

Ég ætla að koma með ofurlitla breyt. við till. mína áðan, að slá ekki föstu, hvort þetta yrði Búnaðarbankinn, eða eftir atvikum annaðhvort hann eða Landsbankinn. En þá er mér bent á það, að seinustu orðin í tillgr. eigi þá ekki við lengur og ættu því að falla burt. — Þá verður brtt. þannig:

a) Á eftir „Landsbankann“ komi: eða Búnaðarbanka Íslands.

b) orðin „eins og áður var“ í lok tillgr. falli niður.

Þá leyfi ég mér að leggja till. fram þannig endurbætta og aukna.