31.03.1933
Neðri deild: 41. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 212 í B-deild Alþingistíðinda. (249)

1. mál, fjárlög 1934

Jóhann Jósefsson:

Það eru ekki margar till., sem ég þarf að mæla með við þessa umr. fjárl., og er það aðallega sökum þess, að ég hefi von um, að fjvn. sjálf greiði á milli umr. úr aðalmálinu, sem ég þurfti að leita til hennar um.

Á þskj. 296, rómv. 26, hefi ég lagt til, að Iðnaðarmannafélaginu í Vestmannaeyjum verði veittar 1200 kr. til kvöldskólahalds. Í mörgum öðrum kaupstöðum hafa félög iðnaðarmanna fengið slíka styrki, t. d. í Hafnarfirði, Ísafirði, Akureyri og Reykjavík, en í Vestmannaeyjum hefir Iðnaðarmannafélagið ekki fengið neinn styrk ennþá. Þó hefir það um nokkurt skeið haldið uppi góðum kvöldskóla. Ég vænti því, að hv. dm. vilji láta þetta félag njóta jafnréttis við samskonar félög í öðrum kaupstöðum og greiði atkv. með þessum litla styrk.

Þá á ég enn brtt. á sama þskj., við 17. gr., um 1000 kr. styrk til Ekknasjóðs Vestmannaeyja, og til vara 800 kr. Sjóður þessi er orðinn nokkuð gamall og hefir aldrei fengið nokkurn styrk. En sökum hinna erfiðu tíma þarfnast hann styrks nú. Vænti ég því, að hv. dm. líti á styrkbeiðni þessa með góðgirni og samþ. till. mína.

Þá hefi ég tekið upp erindi, sem sent var fjvn. Er það styrkbeiðni frá Halldóri Brynjólfssyni, blindum manni í Hafnarfirði. Maður þessi er 60 ára að aldri og hefir verið blindur í 40 ár. Hann hefir stundað sjóróðra öll þessi ár og framfleytt sér og sínum með öllu hjálparlaust allan þennan tíma, innt af hendi opinber gjöld, bæði til ríkis og sveitar. Í umsókn sinni til Alþingis segir hann m. a.: „Ég er alblindur og hefi verið það í 40 ár, en er nú fullra 60 ára að aldri. Þrátt fyrir algert sjónleysi um 4 áratugi hefi ég þó reynt af fremsta megni að sjá mér sjálfum og mínum borgið, og hefir tekizt í öll þessi ár að framfleyta mér með sjómennsku, eyrarvinnu og flestri algengri vinnu; hefir það þó verið allmiklum erfiðleikum bundið. Þannig hefir t. d. alltaf orðið að leiða mig að heiman til skips og frá skipi, ennfremur að og frá vinnu. Síðan ég varð blindur hefi ég róið 28 vertíðir í Vestmannaeyjum og átt þar langa sjávargötu, hálfrar kl.st. veg. Í 12 sumur hefi ég sótt atvinnu á Austfjörðum, við sjóróðra á Mjóafirði, Eskifirði og norður á Langanesi“.

Af þessu er það ljóst, að þessi blindi maður hefir ekki legið á liði sínu til þess að afla sér og sínum lífsbjargar meðan heilsa hans og þróttur leyfði. En nú er hann ekki aðeins blindur, eins og hann hefir verið í 40 ár, heldur allmjög þrotinn að heilsu og kröftum. Liggur því ekki annað fyrir honum en að þiggja af sveit sinni, sér og sínum til framfærslu, ef Alþingi hleypur ekki undir bagga með honum og hjálpar honum um þennan litla styrk. Einar 350 kr. eru ekki stórir fjármunir fyrir þjóðarheildina, en þær myndu duga til þess að forða þessum þrekmikla og hrausta manni frá því að fara á vonarvöl. Manni, sem sökum harðra örlaga hefir verið meinað það, að geta safnað sér fé til elliáranna. Ég vænti nú, að hv. Alþingi sýni manni þessum þá samúð að veita honum þennan litla lífeyri. Að með því verði skapað fordæmi, þarf ekki að óttast. Slík tilfelli sem þetta eru nær einsdæmi.

Þá vil ég taka undir með hv. form. sjútvn. og mæla með styrk til Árna Friðrikssonar fiskifræðings til þess að halda fyrirlestra og semja alþýðlega ritgerð í fræðigrein sinni. Það er alkunna, að þessi ungi vísindamaður hefir alveg sérstakt lag á að skrifa og tala um vísindaleg efni, svo fólk hefir unun að.

Að síðustu vil ég láta í ljós ánægju mína yfir brtt. hv. þm. Mýr. um viðbótarstyrk til Slysavarnafélagsins til þess að leggja nýja símalínu út í Hjörsey á Mýrum. Hér held ég að um svo mikið nauðsynjamál sé að ræða, að allir hv. þdm. hljóti að geta fylgt því. Það getur nefnil. tæplega nokkrum manni dulizt, hversu mjög það er áríðandi að hafa símasamband við þennan hættulega strandstað. Eins og nú standa sakir er staður þessi mjög einangraður, langt þaðan til næstu símstöðvar. Myndi því miklum mun hægara að fá skip fljótlega til hjálpar, þegar slys bæri að höndum, ef símasamband væri þaðan og til Reykjavíkur.

Umr. frestað.

Á 42. fundi í 1d., 1. apríl, var fram haldið 2. umr. um frv.