01.03.1933
Neðri deild: 13. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 378 í D-deild Alþingistíðinda. (2527)

50. mál, styrk handa lækni til að nema lyfjafræði

Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Það hefir nokkrum sinnum komið fyrir, að teknar hafa verið upp í fjárl. fjárveitingar, sem ætlazt er til, að gildi lengur en til eins árs. Í fjárl. hefir það þá verið fyrsta greiðsla af þremur, og þá hefir verið tekin upp fjárveiting á næsta eða næstu þingum. Ég vildi benda á, að það er varhugavert að samþ. till. til fjárveitinga í öðru formi en lagaformi, og engin stjórn er skyldug til að borga út eftir öðru en l.