02.06.1933
Neðri deild: 92. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 384 í D-deild Alþingistíðinda. (2547)
184. mál, alþýðufræðslulöggjöf
Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):
Ég þarf að tala langt mál um þetta efni,
en þar sem svo er orðið áliðið fundartímann, vil ég aðeins mótmæla þeim ómaklegu orðum, sem hv. síðasti ræðumaður lét falla um kennarastéttina og samtök hennar. Og ég mun sýna fram á, að það ósamræmi, sem hv. þm. þóttist finna í bréfinu frá stj. kennarasambandsins, er þar alls ekki til. Um 1. og 3. tölulið till. er það sagt, að þeir séu góðir og viturlegir, en hinir hlutar till. eru kritiseraðir, og er það afbökun á bréfinu að fara eins með það og hv. þm. gerði. Ég vil benda á það, að í ræðu hv. þm. bar nokkuð á óeðlilegum eljuríg milli prestastéttarinnar og kennarastéttarinnar, og ég tel þau orð hv. þm., að slegið hafi verið á framrétta hönd prestanna til uppfræðslustarfs, algerlega ástæðulaus. Hv. þm. taldi, að prestarnir gætu endurgjaldslaust gert mikið að barnafræðslu. Ég hefi aldrei orðið var við, að þeim hafi verið meinað slíkt. En prestunum hefir aldrei verið ætluð barnafræðslan hér á landi, heldur aðeins eftirlit með henni fram til viss aldurs. Og í flestum prestaköllum mun það vera ógerningur fyrir prestana að annast barnafræðsluna ásamt starfi sínu. Og þess vegna er algerlega óþörf þessi afbrýðissemi prestanna við kennarana, og allt skrafið um það, að verið sé að slá á framrétta hönd prestanna og því um líkt.
Þá gat ég ekki fundið, að ádeila hv. þm. á núverandi skipulag barnafræðslunnar væri á miklum rökum byggð. Þó að sé fernskonar háttur á barnafræðslunni, þá sýnir það ekkert ósamræmi, heldur tilraun til þess að laga sig eftir staðháttum. Bæjum og sveitarfélögum hefir verið fengin heimastjórn í þessum efnum, og ekki er hægt að grípa þar inn í fyrirvaralaust. Í þessu skipulagi á ýmiskonar smávegis ósamræmi í uppfræðslunni, sem hv. þm. talaði um, orsök sína.
Ég sé, að hæstv. forseti er orðinn óþolinmóður. En ég á sennilega eftir að tala í klukkutíma a. m. k., svo líklega er bezt að fresta umr. nú.