06.05.1933
Neðri deild: 67. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1829 í B-deild Alþingistíðinda. (2550)

111. mál, útflutningsgjald

Frsm. (Hannes Jónsson):

Ég er auðvitað fús á að ræða þetta mál við hv. þm. G.-K., og ég vil fullkomlega taka undir það, sem hann sagði um, að samkomulag hefði verið gott í n., og ég efast ekki um, að við getum orðið sammála um þetta atriði.

Ég get fallizt á það með hv. þm., að það er mjög æskilegt bæði fyrir þessa framleiðendur og aðra, að þau gjöld, sem á þeim hvíla, séu lækkuð. Ed. hefir nú nýlega afgr. til þessarar d. frv. um, að niður falli útflutningsgjald af landbúnaðarafurðum. Ég get tekið það fram strax nú, að ég er ekkert ginkeyptur fyrir því, þó að margar stoðir renni undir þær óskir, sem í frv. felast.

Þá vil ég benda á það, að ef við styðjum að aukinni framleiðslu í þessum verksmiðjum, þá er það ekki einungis aukið verðmæti á þessari útflutningsvöru, sem við það vinnzt, heldur eykst líka atvinnan í landinu við það. Þó að þessar verksmiðjur séu að einhverju leyti reknar fyrir útlent fé, þá skapar þetta ríkissjóði og sveitarfélögum miklar tekjur. Er það því á margan hátt til hagsbóta fyrir landið, að þessi iðnaður aukist.

Mér er ekki kunnugt um, hve mikið þessi vara rýrnar við vinnsluna, en það mun vera allmikið. (ÓTh: 20%). Þó að nú yrði nokkuð lækkaður tollur af fiskmjöli, þá er það í rauninni ekki svo ýkjamikið, þegar tekið er tillit til þess, hve mikið varan rýrnar við vinnsluna. Það yrði eflaust talsverður hagur að því að fá útflutningsgjaldið lækkað niður í 1½%, eins og upphaflega var lagt til í frv. Hitt væri þó eigi síður mikill hagur, ef hægt væri að koma því svo fyrir, að kaup útlendinga á þessum íslenzku hráefnum bæru sig ekki lengur. Það er því spursmál, hvort ekki sé rétt að gera þær ráðstafanir, að hægt verði að kaupa þessi hráefni eðlilegu verði.

Þetta verður allt að rannsaka, áður en nokkru er slegið föstu. Ég hefi ekki umboð frá n. að taka brtt. aftur. Við höfum athugað málið í n. eftir föngum, og ég hefði haft ánægju af því, að hv. þm. G.-K. hefði verið viðstaddur þær umr., því að vitanlega hefði afgreiðsla hér í hv. d. gengið þá betur.