06.05.1933
Neðri deild: 67. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1830 í B-deild Alþingistíðinda. (2551)

111. mál, útflutningsgjald

Jón Auðunn Jónsson:

Hér er tvenns að gæta. Í fyrsta lagi er það ekki lítils virði, ef hægt væri að stuðla að vinnslu í landinu sjálfu. Ég hefi yfirlit yfir, hvað eitt félag með þremur verksmiðjum hefir greitt í vinnulaun, opinber gjöld, flutningsgjöld og útflutningsgjöld árið sem leið. Vinnulaunin ein nema 190 þús. kr., útsvör og skattar 15 þús., flutningsgjöld 65 þús. og útfl.gjald 32 þús. kr. Á landinu munu vera 6 fiskmjölsverksmiðjur. Það er mikill vinningur fyrir ríkissjóð, að þessi vinnsla missist ekki út úr landinu. En það verður líka að gæta þess, að hráefni lækki ekki svo í verði, að það borgi sig ekki að framleiða það. Ég er ekki viss um, að rétt sé að útiloka erlenda samkeppni. Nú stendur svo á, að rekstrarafl (mestmegnis rafmagn) er 1/3 ódýrara erlendis en hér og vinnulaun langtum lægri, svo að útlendingar ættu að vera samkeppnisfærir, þó að eitthvað yrði hækkað útflutningsgjald af beinum.

Það er alveg rétt, sem fram kemur í brtt. hv. þm. Vestm., að nokkur munur er á sólþurrkuðum og eldþurrkuðum beinum. Ávallt er hærra verð á fiskmjöli úr sólþurrkuðum beinum heldur en úr beinum, sem þurrkuð eru í ofni, og væri rétt að taka tillit til þess. Auk þess er talsverð vinna við að sólþurrka beinin, og er því heppilegast, að sem mest sé sólþurrkað af þeim. Það er ekki nema eðlilegt, að útflutningsgjald af eldþurrkuðum beinum sé lægra en af sólþurrkuðum, þar sem verðið er lægra. Útflutningsgjald af fiskmjöli og síldarmjöli er óvenjulega hátt. Venjulega er útflutningsgjald 6—9% miðað við verð vörunnar.

Af þessum vörutegundum var útflutningsgjald 8—10% á síðasta ári. Þetta er afskaplega hátt og ekki eðlilegt, að útflytjendur geti staðizt erlenda samkeppni með þessu móti. Það vakti fyrir n. með till. sínum, að nú er þannig ástatt, að ríkissjóður virðist þurfa að beita hreinni og beinni skattaáþján, og þá er spursmál, hvort lækka beri þessi óbærilegu útflutningsgjöld eða láta þau halda áfram. N. hefir fallizt á að létta undir með samkeppninni með því að hækka innl. útflutningsgjald af beinum.

Ef hv. þm. Vestm. vill taka sína till. aftur, þá get ég fyrir mitt leyti fallizt á að láta till. n. bíða til 3. umr.