31.03.1933
Neðri deild: 41. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 234 í B-deild Alþingistíðinda. (256)

1. mál, fjárlög 1934

Bjarni Ásgeirsson:

Ég vil aðeins lýsa því yfir, að samkvæmt beiðni hv. frsm. mun landbn. taka aftur till. um lækkun á styrk vegna framkvæmda jarðræktarl. og sömuleiðis áætlunarstyrkinn vegna l. um tilbúinn áburð.

Út af því, sem hv. frsm. talaði um fjárveitinguna til slysavarna, skildist mér, að það væri aðallega formið, sem n. setti sig á móti. Hv. frsm. sagði, að ef ætti að varna sjóslysum, þá ætti að gera það með því að byggja vita, og það heyrði undir vitamálin, en ef ætti að leggja síma, þá heyrði það undir símal. Ég get ekki séð, að þetta sé neitt aðalatriði. Hitt er aðalatriðið, að reyna að koma í veg fyrir slysin, og til þess eru ýmsar leiðir heppilegastar, allt eftir því, hvernig á stendur á hverjum stað. Stundum er það gert með því að kaupa línubyssu, stundum með því að kaupa bát, stundum með því að byggja vita. Það er ekki langt síðan hér á þingi var samþ. fjárveiting til vegalagningar, af því að það þótti heppilegast til slysavarna á þeim stað. Á þessum stað, sem hér um ræðir, stendur aftur á móti þannig á, að það er talið heppilegast til slysavarna að fá þarna síma, eru engar mótsagnir í því, að fá síma til slysavarna, þegar Slysavarnarfélagið álítur það tiltækilegast til að varna slysum. En til að þetta mál verði ekki fellt vegna misskilnings á formi þess, þá lýsi ég því yfir, að ég tek till. aftur til 3. umr.