12.05.1933
Efri deild: 70. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1833 í B-deild Alþingistíðinda. (2560)

111. mál, útflutningsgjald

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Tímanlega á þinginu flutti ég frv. til 1. um breyt. á l. um útflutningsgjald af síld, og sem afleiðing þess flutti ég einnig frv. það, sem hér liggur fyrir. Eins og hv. þdm. muna, er um tvennskonar útflutningsgjald að ræða. Frv. hlutu því að fylgjast að, og er þetta afleiðing þess fyrra, og þurftu þau að afgreiðast í þeirri röð. Nú tókst nokkuð óhöndulega til um afgreiðslu þessara mála í hv. Nd. Þessi mál voru hér afgr. af sjútvn., en þar var þeim vísað til fjhn. Nú vil ég að vísu ekki segja, að þetta hafi haft veruleg áhrif á afgreiðslu málanna þar, en það er þó ekki eins og þingsköp mæla fyrir. En afgreiðsla þessara mála tókst einnig óhöndulega til á annan hátt þar. Þess var ekki gætt að afgr. þau með tilliti til þess sambands, sem var á milli þeirra. Þetta frv. var afgr. á undan og með breyt., sem stenzt ekki eftir afgreiðslu hins frv., eða a. m. k. hafði ég ekki hugsað mér afgreiðslu þess svo í fyrstu. Ef þetta frv. fer fram óbreytt, þá verður síldarmjöl algerlega undanþegið útflutningsgjaldi. En það var ekki meining mín, heldur aðeins það, að útflutningsgjaldið yrði lægra. Sjútvn., sem athugað hefir frv. að nýju, leggur til, að það verði fært til þess horfs, sem það var í þegar það fór héðan. Verði breyt. n. samþ., þá flyzt þetta frv. til samræmis við hitt frv., sem þegar er orðið að l. Vona ég því, að brtt. n. verði samþ. Að vísu verður það þess valdandi, að frv. verður að ganga til Nd. aftur til einnar umr. þar. En hjá því verður ekki komizt, því nauðsynlegt er að hafa útflutningsgjald á þessu sem öðrum sjávarafurðum.