08.05.1933
Neðri deild: 68. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1841 í B-deild Alþingistíðinda. (2583)
95. mál, alþýðuskóla á Eiðum
Hannes Jónsson:
Ég hefi nú leitað með logandi ljósi að ástæðum fyrir þeim brtt., sem hér liggja fyrir, en er ómögulegt að koma auga á nokkra. Ég hefi heldur ekki heyrt hv. þm. segja neitt, sem styrkt getur það, að brtt. séu réttmætar eða nauðsynlegar. Það eina, sem ef til vill mætti segja, að væri þeim til stuðnings, eru þær umr., sem fallið hafa um það, hvort hægt væri að losa ríkið undan þeim skyldum, sem það tók á sig, er það tók við Eiðaskóla, með því einu að fella l. frá 1917 úr gildi. Ég skoða ummæli hv. 1. þm. S.-M. í þessa átt sem yfirlýsingu um það, að ríkið geti hvenær sem er losað sig undan þessum skyldum með því að breyta eða fella úr gildi l. frá 1917. (Dómsmrh.: Og skila aftur eigninni?). Annað hefi ég ekki heyrt, sem stutt gæti þessa breyt. á frv. Mér skilst það vera samhuga álit hv. nm., að brtt. séu óþarfar. En hv. frsm. sagði, að úr því þessi óþarfi væri kominn fram, þá væri leiðinlegt að fella hann. Það eru nú dálítið veikar röksemdir fyrir brtt., að þær séu alveg óþarfar, en þó megi ekki fella þær, úr því þær eru einu sinni komnar fram. Ég veit ekki, hvenær má greiða atkv. móti brtt., ef ekki má fella þær brtt., sem eru alveg óþarfar. Það mætti lengi halda áfram að breyta frv., ef samþ. ætti allar brtt., sem ekki eru beinlínis skaðlegar, hvað óþarfar sem þær eru. Allar óþarfa till. á þvert á móti að útiloka, þær eru ekki til annars en tefja þingið og tefja málin. Ef þessar brtt. eru samþ., þarf frv. aftur til hv. Ed., og það er óþörf töf. Ég skil ekki afstöðu hv. 1. þm. S.-M. Hann vill láta samþ. brtt. af því þær séu meinlausar, þýðingarlausar og gagnslausar. Af þeim einföldu ástæðum tel ég sjálfsagt að fella þær.