29.03.1933
Efri deild: 37. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1845 í B-deild Alþingistíðinda. (2597)

133. mál, lokunartími sölubúða

Flm. (Jón Baldvinsson):

Þetta frv. er gamall kunningi í þessari hv. d., en hefir hingað til sofnað í þinginu. Það er viðauki við samþ. um lokunartíma sölubúða í kaupstöðum frá 1917 og fer fram á að bæta þar við, að sendisveinar þurfi ekki að hafa eins langan vinnutíma og nú er. Í frv., sem hefir verið rætt nokkuð ýtarlega við umr. á undanförnum þingum í þessari hv. d., hefir verið gerð grein fyrir þessu, og þykir mér ekki ástæða til þess að fara frekar út í það. Vil aðeins gera þá aths. um skilning á 2. gr., að ég tel, að undir þessa gr. mundu koma allar þær búðir, sem þar eru nefndar, og auk þess sala á heimabökuðu kaffibrauði, sem ýmsar konur hafa tekið upp og selt er í heimahúsum. Það er nú byrjaður atvinnurekstur á þessu sviði, sem auðvelt er að fella undir það sama og aðrar verzlunarbúðir eftir þessari gr. frv. Vil ég svo mælast til, að frv. verði vísað til allshn. og 2. umr. Vil jafnframt mælast til þess við hv. allshn., að afgreiða þetta frv., sem sérstaklega tryggir þessari ungu kynslóð í verzlunarstéttinni skaplegan vinnutíma. Það ætti ekki að vera heimilunum nein óþægindi þó ekki væri verið að senda vöru fram eftir öllu kvöldi. Menn mundu fljótt átta sig á þessu og panta vöruna í tíma.