27.05.1933
Neðri deild: 84. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 387 í D-deild Alþingistíðinda. (2610)

201. mál, útrýming fjárkláða

Þorleifur Jónsson:

Af því að hér er um stórmál að ræða og umþráttað á fyrri þingum, en lítið undirbúið fyrir þetta þing, þá finnst mér eðlilegt, að þm. fengju tíma til þess að athuga málið. Það er fyrst nú á síðustu dögum þingsins, að þáltill. kemur fram um þetta mál, og ætla ég, að réttast væri, að þessari umr. yrði frestað og till. vísað til landbn., sem hefir með þetta mál að gera.

Um 3. lið till. er það að segja, að hann getur haft víðtækar afleiðingar, þar sem í honum er í raun og veru fyrirskipuð útrýmingarböðun á öllu landinu.

Um skoðunina get ég tekið það fram, að ég tel nauðsynlegt, að hún fari fram alstaðar þar, sem nokkur minnsta hætta er á fjárkláða. En á öllu svæðinu frá Jökulsá á Sólheimasandi að Jökulsá á Fjöllum hefir ekki orðið vart við nokkurn fjárkláða í mörg ár. Á öllu þessu svæði efast ég um, að nokkur skoðun þyrfti að fara fram. Það er trú manna, að það sé klaufaskap almennings að kenna, að ekki er hægt að halda fjárkláðanum í skefjum með almennri góðri þrifaböðun, og ég er smeykur um, að þær séu vanræktar í þeim sveitum, sem fjárkláðinn helzt við ár eftir ár.

Ég skal játa, að hér er merkilegt mál á ferðum og mikilsvert fyrir alla fjárrækt, að þessum vágesti sé útrýmt með öllu. En hitt sýnist mér óþarft og óráðlegt að fyrirskipa útrýmingarböðun um land allt með þeim kostnaði, sem af því leiddi, þar sem vitað er, að helmingur landsins er alveg laus við fjárkláða.

Ég hefði álitið réttast, að tvær umr. hefðu verið hafðar um þetta mál, með því að ef 3. liður verður samþ., þá er stj. heimilt að fyrirskipa böðun um allt land, og leiðir af því mikil fjárútlát fyrir ríkissjóð, en um slíkar till. er venja að hafa tvær umr. A. m. k. legg ég til, að umr. verði frestað og þáltill. vísað til landbn., svo að hægt sé að taka málið til nákvæmari athugunar.