12.05.1933
Neðri deild: 72. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1848 í B-deild Alþingistíðinda. (2612)
133. mál, lokunartími sölubúða
Frsm. (Steingrímur Steinþórsson):
Frv. þetta er komið frá Ed. og hefir gengið breytingalaust í gegnum hana. Allshn. mælir með því, að það verði samþ. Þó hafa 2 nm., hv. þm. Vestm. og hv. þm. Ak., haft fyrirvara um fylgi við frv. Ég sé ekki ástæðu til að ræða frv. þetta mikið. Hv. dm. hafa náttúrlega kynnt sér, hvað hér er um að ræða. Það er aukin heimild fyrir bæjarstjórnir til þess að gera samþykktir um lokunartíma sölubúða, þannig að samkv. frv. geta bæjarstjórnir gert samþykktir um lokunartíma fleiri sölubúða en áður var heimild til. Líka er hér um að ræða heimild til að takmarka vinnutíma sendisveina. Mun ekki vafi leika á því, að brýn þörf er á, að bæjarstjórnir hafi heimild til að takmarka slíkt, þar sem hér er um börn að ræða, sem búast má við, að oft verði misboðið með of löngum vinnutíma, nema lögverndaður verði réttur þeirra til nægilegrar hvíldar. N. leit því svo á, að sjálfsagt væri og rétt að veita bæjarstjórnum þessar heimildir.
Fyrirvara sínum munu hinir 2 nm. gera sjálfir grein fyrir.