12.05.1933
Neðri deild: 72. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1850 í B-deild Alþingistíðinda. (2625)

133. mál, lokunartími sölubúða

Frsm. (Steingrímur Steinþórsson):

Út af fyrirspurn hæstv. dómsmrh. vil ég taka það fram, að ég er hræddur um, að bréf þetta hafi farið forgörðum, a. m. k. minnist ég þess ekki, að það hafi verið athugað í n. En ég skal lofa því, að n. athugi það fyrir 3. umr., hvort hún vilji bera fram brtt. um þetta atriði, sem hæstv. ráðh. talaði um. Brtt. þeirra hv. þm. Vestm. og hv. þm. Ak. um, hvort heimilt skuli að skipa svo fyrir, að útsendingu úr búðum skuli lokið klst. áður en búðir loka, mun ég ekki gera að neinu deiluefni. Ég get að vissu leyti fallizt á röksemdafærslu þeirra, um að það geti valdið óþægindum, að flutningar úr búðum hætti áður en búðum er lokað. En þar sem sendisveinar oft eru börn, getur verið ástæða til að takmarka vinnutíma þeirra að einhverju leyti frekar en fullorðinna manna. En ég vil benda hv. þm. á það, að hér er aðeins um heimild að ræða í frv., svo að það er á valdi bæjarstj. á hverjum stað, að hve miklu leyti þessi ákvæði verða notuð. Tel ég litlar líkur til þess, að þessum ákvæðum yrði beitt, nema ríkar ástæður lægju til, og sízt þeim í óhag, sem þurfa að kaupa vörur í búðum, og álít ég frv. því ekki að neinu leyti hættulegt í því formi, sem það hefir nú. Hinsvegar geri ég það ekki að kappsmáli, hvort brtt. hv. þm. Ak. verður samþ. eða ekki.