10.04.1933
Neðri deild: 49. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 250 í B-deild Alþingistíðinda. (264)
1. mál, fjárlög 1934
Frsm. samgmn. (Jón Auðunn Jónsson):
Eins og sjá má á þskj. 348, leggur samgmn. til, að veitt verði sama upphæð til flóabátaferða eins og áætlað er í fjárl.frv. N. leitaði allra ráða til þess að þurfa ekki að hækka þessi útgjöld ríkissjóðs, jafnvel þó sjáanlegt sé, að það muni bregða til beggja vona um rekstur á a. m. k. tveimur flóabátum, sem styrktir hafa verið úr ríkissjóði til þess að halda uppi ferðum. En það verður að teljast óhjákvæmileg nauðsyn að halda þeim ferðum uppi. Þessir bátar eru Djúpbáturinn og Flateyjarbáturinn. Þeir hafa stöðugt verið reknir með tekjuhalla, og síðastl. ár var um 8000 kr. tekjuhalli á rekstri Djúpbátsins, en um 4000 kr. halli á Flateyjarbátnum. Þó að svona stæði á, hefir n. ekki séð sér fært að hækka styrk til þessara flóabáta fremur en annara.
N. hefir gert mjög lítilfjörlegar frávikningar um styrki til bátaferða frá því, sem er í fjárl. þessa árs. Það er aðeins um að ræða lítilsháttar hækkun á tveimur liðum og lækkun á einum, og stenzt það á.
Það hefir undanfarið verið megn óánægja yfir því, hvernig styrknum til Hornafjarðarbátsins hefir verið varið. Austfirðingar, sem stunda útgerð frá Hornafirði, hafa þótzt afskiptir um styrk þann, sem greiddur hefir verið til Hornafjarðarbáts. Samg.mn. hefir átt tal við hv. þm. A.-Sk. um þetta efni, og eftir áliti hans leggur n. til. að á vetrarvertíðinni verði úthlutað 4000 kr. styrk til Hornafjarðarbátsins, en til annara ferða 3500 kr., eða samtals 7500 kr. — Þá hefir n., eftir beiðni frá Öræfingum, borið fram till. um aukinn flóabátastyrk til þeirra. Skaftfellingur hefir annazt um flutninga þeirra að undanförnu. Öræfingar eiga afar-erfiða aðstöðu til flutninga á landi vegna vatna, sem sífellt eru ófær, og á sjó, sökum brims við sandana. Við Ingólfshöfða er mjög erfitt að ná vörum í land úr bátum.
Undanfarin ár hefir Skaftfellingur fengið 24 þús. kr. styrk úr ríkissjóði árl., hæst allra flóabáta. Nú leggur n. til, að teknar verði af þessum styrk 600 kr. á næsta ári, og það fé ætlað sem sérstakur flutningastyrkur til Öræfinga. N. leggur til, að Skaftfellingur hafi viðkomur við Rangársand, þegar ástæður leyfa og þörf krefur. Mun það og hafa verið gert að undanförnu. Væntir n. þess, að hv. þm. V.-Sk. geti fallizt á þessa aths. við styrkinn til Skaftfellings. Ég sé svo ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um till. samgmn. að öðru leyti.
Þá á ég sjálfur nokkrar brtt. við fjárl. að þessu sinni. Fyrst vil ég minnast á brtt. við 3. gr., um hækkun á fjárframlögum til nýrra símalína, er nemi 35 þús. kr., og að fyrir það fé verði lögð ný símalína frá Sandeyri um Stað í Grunnavík til Hesteyrar. — Ég hefi áður lýst þeirri miklu þörf, sem á því er, að fá þetta símasamband. Og allir þeir, sem eru kunnugir staðháttum, eru mér sammála í þessu efni. Á Hesteyri er loftskeytastöð, sem kostar í rekstri um 3600 kr. á ári. Hún er nálega eingöngu notuð í þágu veðurathugana. En sem viðskiptastöð gerir hún nálega ekkert gagn, sérstaklega af því að hún hefir ekkert samband við Ísafjörð. — Landssímastjóri hefir upplýst, að með þessari væntanlegu símalínu megi spara um 3000 kr. árl. á rekstri Hesteyrarstöðvarinnar. Ennfremur er það kunnugt, að á þessu svæði, sem símalínan á að koma að notum, eru um 800 manns. Tekjur stöðvarinnar á Hesteyri yrðu talsvert miklar, sérstaklega um síldveiðitímann, þegar síldarbræðslustöðin er þar í gangi. Geri ég ráð fyrir, að símastöð á Hesteyri mundi gefa svipaðar tekjur og stöðin í Bolungavík. En það eru um 3000 kr. árlega, umfram rekstrarkostnað. Fólkið á þessu svæði er um 150 manns færra en í Hólshreppi, en taka má tillit til hinnar miklu starfrækslu í sambandi við síldarverksmiðjuna. Þeir, sem vinna við verksmiðjuna, og hinir, sem selja þangað afla sinn, hafa að sjálfsögðu mikil símaviðskipti. Það er því ekki annað sýnilegt en að það sé fjárhagslegur gróði að því fyrir landssímann, að þessi lína verði lögð, og hygg ég, að landssímastjóri sé líka þeirrar skoðunar.
Til símalagninga í Ísafjarðarsýslu hefir frá byrjun verið varið aðeins um 33800 kr. úr ríkissjóði, fyrir utan aðalsímalínuna til Ísafjarðar. Og nettótekjur landssímans af símakerfinu í sýslunni eru um 6500 kr. á ári. Það er ekki lítill búhnykkur fyrir ríkissjóð, jafnframt hinum miklu og víðtæku þægindum, sem símakerfið hefir fyrir íbúa héraðsins. Annars virðist svo, sem sumstaðar á landinu hafi ekki verið mikil þörf á símalagningu. Samkvæmt reikningum landssímans fyrir árið 1931 eru 22 landssímastöðvar taldar að gefa innan við 50 kr. árstekjur, og 29 stöðvar gefa 50—100 kr. tekjur. Ein loftskeytastöð gefur af sér 4 kr. í tekjur samkvæmt reikningum símans 1931. Til samanburðar má nefna, að tekjur af eftirlitsstöðinni í Æðey í Ísafjarðardjúpi var þetta ár 365 kr. Á þessari eyju eru aðeins tvö heimili.
Það virðist hafa verið nokkuð meiri þörf á því, að leggja línu um þessa eyju, sem var alveg í leiðinni og beint hagræði til að komast yfir Djúpið, heldur en að byggja þessa loftskeytastöð í Papey. Annars er það furðulegt um margar þær línur, sem hafa verið lagðar á síðustu árum og þá oft og tíðum utan fjárl. og utan símalaga. Þannig er það, svo að ég nefni eitt eða tvö dæmi, um eina línu í Vestur-Ísafjarðarsýslu, út á Ingjaldssandi. Ég held, að notendurnir geti ekki verið yfir 70, enda voru tekjurnar um 74 kr. árið 1931, en kostnaðurinn við byggingu þessarar línu nam 15091 kr. Í Strandasýslu var á sama tíma lögð lína, sem kostaði 15—18000 kr., fyrir eitt einasta heimili. Það mætti telja fjöldamörg dæmi svipuð þessu og sum kannske engu betri. Landssímastjóri sagði mér, að þegar hann hefði lagt sínar till. fyrir n. að þessu sinni, þá hefði hann tekið upp það, sem áður hefði verið búið að leggja til, en hefði ekki athugað, hvar þörfin væri mest, þetta hafi verið ákveðið af fjvn. og landssímastjóra á fyrri árum, en ekki hægt að framkvæma eins og till. þá lágu fyrir. Ég skal benda á mestu fjarstæðurnar, sem mér virðist vera í þessum till., sem hér liggja fyrir. Það er þá fyrst símalína frá Kvígindisdal til Breiðuvíkur í Barðastrandarsýslu. Í Breiðuvík, Látravík og ég man ekki hvað ein víkin heitir, hefir íbúunum farið stórum fækkandi. Árið 1920 bjuggu þar 143, en árið 1930 113 manns, og mér er sagt, að síðan hafi fækkað um 11 manns. Þarna er engin aðstaða til þess að reka smábátaútgerð. Þarna á að byggja símalínu fyrir 18 þús. kr. Það má segja dálítið svipað um símalínuna frá Bíldudal að Selárdal og nú stendur á. Að leggja símalínu alla leið út að Selárdal, þó að á sumar eða vorvertíðinni séu þar kannske 7 bátar, það nær ekki nokkurri átt. Kostnaðurinn er áætl. 16 þús. kr. Hinsvegar að leggja línu út í Bakkaþorp, væri nokkru nær, þar er meiri útgerð og meira fjölmenni, og kostnaðurinn hálfu minni. Þá er ráðgert að leggja línu um Fnjóskadalinn, strjálbyggða sveit. Ég veit líka, að það er minni þörf að leggja stöðvarlínuna Ögur-Arngerðareyri fyrir 16 þús. kr., en þessa línu í norðurhreppana. Sama er að segja um línuna Arngerðareyri—Melgraseyri. Þarna norður frá er æðimikil útgerð. Þaðan ganga um 20 bátar í vetur og í fyrra vor og þaðan flytjast venjulega um 3000 skippund af fiski, jafnvel allt að 5000 skippund, þegar mest hefir verið. Strjálbýli er þar talsvert, en þó eru þar 3 þorp. Í einu þorpinu eru á þriðja hundrað, í öðru um hundrað og í því þriðja á annað hundrað manns. Ég sé ekki, að það sé með nokkru móti forsvaranlegt af ríkissjóði að neita um lagningu á þessum símalínum, sem allmikill hagnaður er fyrir ríkissjóð að leggja og koma auk þess margfalt fleiri landsbúum að notum en þær línur, sem ég hefi nú minnst á.
Aðaltill. mín er á þskj. 376, I., en til vara er till. á þskj. 366, II. Ef hv. d. og hv. n. vill ekki fallast á að leggja þessa línu í einu lagi, þá verði a. m. k. lögð lína frá Sandeyri til Staðar í Grunnavík. Þó að það sé löng leið frá Hesteyri að Stað í Grunnavík, þá er víst, að fjöldi manna úr Sléttuhreppi mundi fara að Stað í Grunnavík, meðan línan væri ekki komin lengra, svo að sú lína mundi gefa fullar tekjur á við tilkostnaðinn. Ósamræmið, misréttið og hlutdrægnin í þessum málum hefir verið óþolandi. Ég vil þakka n. fyrir till. hennar um Laugadalsveginn og framhald bryggjugerðarinnar í Hnífsdal. — Þá á ég till., sem ég tók aftur til 3. umr., um 20 þús. kr. og til vara 10 þús. kr. framlag til brimbrjótsins í Bolungavík; því miður eru tillögur hreppsnefndarinnar í Hólshreppi ennþá ekki komnar til vitamálastjóra um það, hvernig þetta verk skuli unnið og meðan svo er, þá verður að sjálfsögðu ekkert unnið, því að það er sjálfsögð skylda, sem líka hv. frsm. n. tók fram, að slíkt verk sé unnið eftir till. og undir eftirliti vitamálastjóra. Þó að fjárveiting fengist, verður hún ekki notuð nema vitamálastjóri og hreppsnefndin komi sér saman um hvernig verkið verður unnið. Leyfi ég mér að flytja þessa till., þó að hún sé miður undirbúin en vera ætti og nauðsyn væri til.
Þá á ég till. á þskj. 366 undir XLI. til Victoriu Bjarnadóttur kennaraekkju, 200 kr. og til vara 150 kr. Svo stendur á, að maður hennar sálugi, Sigurgarður Sturlaugsson, var lengi kennari á Bíldudal og fleiri stöðum og honum voru ætluð eftirlaun, 300 kr., á fjárl. 1932. Hann hafði lengi verið veikur og lá hér á Landakotsspítala í berklum í baki, en áður en kæmi til útborgunar þessara eftirlauna, lézt þessi maður. Ekkja hans er fátæk og býr með dóttur sinni ungri og föður sínum, sem nú er kominn yfir sjötugt. Hún kvað eiga erfitt og liggja við skorti, vænti ég þess að hv. n. athugi þetta og hv. d. geti fallizt á að veita þessi litlu eftirlaun. — Ennfremur á ég ásamt hv. þm. Seyðf. og hv. þm. Barð. till. um berklastyrk til Guðrúnar Böðvarsdóttur, 1200 kr., og til vara 600 kr. Þessi kona mun ekki hafa legið á sjúkrahúsi, en hefir verið í heimahúsum hjá frændfólki sínu og fékk í fjárl. yfirstandandi árs 1200 kr., en hv. n. hefir lagt til, að slíkir persónustyrkir verði felldir niður. Má vera, að það sé rétt í mörgum tilfellum, en ég hygg, að hér standi sérstaklega á og vildi mælast til þess, að a. m. k. lægri upphæðin væri samþ. — Þá er það út af till. hv. n. á þskj. 376 undir XXI., að ég vildi segja nokkur orð. Hv. fjvn. leggur til, að till. um útborgun á lífeyri Sigurðar Kristjánssonar fyrrv. barnakennara verði strikuð út, með þeim forsendum, að það yrði óþægilegt að standa á móti öllum þeim beiðnum, sem síðar kæmu um sama efni. Hv. frsm. n. gat þess, að lífeyrissjóðirnir hefðu vaxið svo mjög, að sum árin hefðu tekjurnar orðið 100 þús. kr. umfram útgjöldin. Mér virðist, þegar svo er, þá sé frekari ástæða til þess að endurgreiða án vaxta þeim, sem hafa lagt í sjóðina, en hverfa síðan frá sínum starfa, án þess að hafa fengið neinn lífeyri eða styrk frá viðkomandi sjóði; einmitt af því að sjóðirnir standa sig vel og virðast hafa tekið óþarflega há gjöld af meðlimum, þá sé meiri sanngirni að endurgreiða þeim þegar þeir hverfa frá starfa, heldur en ef sjóðirnir stæðu sig mjög illa. Hv. frsm. gat þess, að lífeyrissjóðir myndu hafa verið fyrst opnaðir fyrir símameyjarnar. Það er alveg rétt, að símameyjarnar fengu, þegar þær létu af störfum, útborgað það, sem þær höfðu borgað í sjóðinn án vaxta. Hinsvegar hafa ýmsir starfsmenn aðrir fengið endurgreitt án vaxta. Man ég eftir því, að það mun hafa verið í fyrsta skipti, að ekkju Bjarna heitins Jónssonar frá Vogi var greitt, það sem hann hafði borgað í sjóðinn. — Mér þætti undarlegt, ef þessi till. n. yrði samþ. eftir að 23 menn hér í hv. d. höfðu samþ. till. um að endurgreiða Sigurði Kristjánssyni þetta fé við 2. umr. þessa máls og ef úr því verður, sem hv. frsm. drap á, að stj. undirbúi einhverjar nýjar reglur þessu viðvíkjandi, þá væri a. m. k. ekki hætta vegna þess fordæmis, sem hér væri gefið, því að reglurnar mundu koma í veg fyrir, að fleiri kæmu á eftir, sem líkt stæði á með eins og með þennan mann. Ég vil mega vænta þess, að þessi till. n. verði felld. Ég sé ekki, að hv. dm. geti gengið svo á móti yfirlýstum vilja sínum við 2. umr. þessa máls, að þeir felli niður endurgreiðsluna til Sig. Kr., en láti till. um endurgr. til Jóns Halldórss. fyrrv. ríkisféhirðis standa, en sú till. var samþ. með færri atkv. en till. um endurgr. til S. Kr.