29.04.1933
Efri deild: 59. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1852 í B-deild Alþingistíðinda. (2643)

80. mál, dýralæknar

Páll Hermannsson:

Það vill svo til, að einn nm. úr landbn. — hv. 4. landsk. — er hér ekki viðstaddur, en það er einmitt hann, sem hefir framsögu fyrir n. hönd í þessu máli. Mér þykir samt rétt, úr því að málið er tekið hér fyrir, að n. fylgi því úr hlaði með fám orðum.