05.05.1933
Efri deild: 64. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1862 í B-deild Alþingistíðinda. (2662)
80. mál, dýralæknar
Jón Jónsson:
Hv. þm. Árn. talaði svo lengi og mildilega, að ég vil ekki tefja fyrir þeim umr., sem allir eru spenntastir fyrir, með því að fara mörgum orðum um þetta. Hv. þm. hrakti ekki með einu orði mitt álit um það, að ekki væri ástæða til að afgr. þetta mál nú á þinginu, heldur að rannsaka öll skilyrði fyrir því, hvar heppilegast væri að setja dýralæknana og leggja það fyrir næsta þing. Og þó að málinu yrði hraðað og frv. samþ., þá er enginn dýralæknir við hendina; þeir koma fyrst að ári, enda mun þess ekki vænzt, að dýralæknir þessi verði skipaður fyrr en næsta ár. Þá er einmitt gott að nota tímann til að rannsaka þetta. Hvað þeim atriðum viðkemur, sem hv. þm. minntist á, þá sanna þau ekki mikið. T. d. er mér kunnugt um, að það eru ekki dýralæknarnir, sem hafa hjálpað til þess að lækna ormaveikina, heldur aðrir vísindamenn, sem fundið hafa meðul við henni og gefið ráðleggingar. Hv. þm. sagði í ræðu sinni, að horinn, sem hefði verið einhver mesti bjargvættur móti sjúkdómum, að því er mér skildist, væri nú fallinn úr sögunni, og batnandi meðferð á húsdýrum hefði gert sjúkdómana tíðari. Það má vel vera, að svo sé, en ekki er það tilfellið fremur í þessum héruðum heldur en annarsstaðar á landinu.
Ég geri nú þetta ekki að neinu kappsmáli, en held við það, sem ég áður sagði, að heppilegt væri, að málið yrði látið bíða til næsta þings.