16.05.1933
Neðri deild: 75. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1864 í B-deild Alþingistíðinda. (2672)

80. mál, dýralæknar

Frsm. minni hl. (Pétur Ottesen) [óyfirl.]:

Ég skal ekki lengja mikið umr. um þetta mál. Ég hefi gert grein fyrir afstöðu minni í nál. á þskj. 682, sem sýnir það, að ég hefi ekki getað orðið samferða hv. meðnm. mínum í afgreiðslu þessa frv.

Eins og tekið er fram í nál., hefi ég ekki séð mér fært að leggja til, að frv. verði samþ. að þessu sinni. Byggist það fyrst og fremst á því, að ég vil, að áður en tekin er ákvörðun um fjölgun dýralækna, sé athugað, hvort ekki sé hægt, með breyttri búsetu dýralæknisins, að hafa hans meiri not en nú er hægt.

Svo er annað atriði. Eins og nú er, þá nær sú hjálp, sem dýralæknar geta veitt bændum, harla skammt. Eftir því, sem mér er bezt kunnugt, þá er ekki hjálpar til þeirra að leita í baráttunni við þá búfjársjúkdóma, sem landbúnaðinum stendur nú mestur voði af. Á undanförnum árum hafa ýmsir faraldrar komið upp í búfé bænda bæði á Norðurlandi og eins í Borgarfirði, einkum sauðfé. T. d. hefir lungnabólga í sauðfé gert stórtjón í þessum héruðum. Dýralæknarnir réðu ekkert við þessa veiki. Því var það, að stj. fékk Niels Dungal lækni til að fara vestur í Borgarfjörð og rannsaka veikina. Tókst sú rannsókn svo giftusamlega, að honum tókst að finna sýkilinn og öruggt meðal við veikinni.

Annar skæður faraldur í sauðfé bænda er ormaveiki í lungum og görnum. Við þeirri veiki hafa dýralæknar ekki heldur getað gert neitt. Þessi veiki hefir ekki enn verið rannsökuð af þeim eina manni, sem fær er um það hér á landi, sem sé Nielsi Dungal, en brýn nauðsyn er til, að það verði gert það allra bráðasta. Landbúnaðinum stafar mesta hætta af þessum faraldri; sama er að segja um hina svonefndu Hvanneyrarveiki, sem verið hefir hinn mesti vágestur og gert mikinn usla. Fyrir nokkrum árum var erlendur maður, Þjóðverji, að ég ætla, fenginn til þess að rannsaka þessa veiki. Hann gerði það, rannsakaði hana og gaf ráð og leiðbeiningar, sem komu að nokkru liði. Væri sjálfsagt að rannsaka þetta betur, en reynslan hefir sýnt, að það er ekki að byggja á dýralæknunum, heldur verður að leita hjálpar á annan hátt. Það er ekki nema á mjög takmörkuðu sviði, sem dýralæknarnir koma að liði. Þó tel ég bót að því, ef tekið væri til athugunar, hvar dýralæknar skuli eiga sæti, því að ekki vil ég með þessu, sem ég sagði áðan, gera lítið úr þeirra starfi. Niðurstaðan af mínum till. er sú, að skora á ríkisstj. að taka til rækilegrar athugunar, bæði hvernig dýralæknum yrði bezt hagað, svo að sem bezt gagn yrði að starfi þeirra í þágu landbúnaðarins, og eins hitt, að rannsaka búfjársjúkdóma og neyta allrar orku til þess að afstýra þeim.

Ég hefi falið mína afstöðu í rökst. dagskrá, sem ég ætla að lesa upp með leyfi hæstv. forseta, og vænti ég þess, að hún verði borin undir atkv. Hún er svo hljóðandi: [sjá þskj. 682].

Eins og getið er um í nál., verður það miklu meiri og betri ráðstöfun fyrir landbúskapinn, ef þetta verður gert og látin fara fram nákvæm rannsókn, heldur en þótt fjölgað væri dýralæknum. Það hefir sýnt sig, að landsmenn bera lítið traust til dýralæknanna, og ég held, að í fyrra hafi komið fram í frv.formi till. um að fækka dýralæknum um helming, úr 4 niður í 2. Og það voru bændur, sem stóðu að þessari till. Þetta er spegilmynd af því, hvað bændur álíta, að felist í starfi dýralæknanna til úrlausnar á vandamálum landbúnaðarins.

Umr. frestað um stund.

Síðar á sama fundi var fram haldið 2. umr. um frv.