16.05.1933
Neðri deild: 75. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1873 í B-deild Alþingistíðinda. (2683)
80. mál, dýralæknar
Sveinbjörn Högnason:
Ég vil aðeins leiðrétta þann misskilning hjá hv. þm. Borgf., að við séum allir samþykkir hinni rökst. dagskrá hans. Það var aðeins eitt atriði í henni, sem mér virtist menn taka í mál að samþ. Dagskrártill. hans ruglar saman tveim alveg óskyldum atriðum, og þess vegna getur maður verið henni samþykkur í öðru atriðinu, en ekki hinu. Vitanlega er brýn þörf á því að rannsaka eðli búfjársjúkdómanna, sem gert hafa landbúnaðinum mikinn skaða, og reyna að finna ráð við þeim. En hinsvegar hygg ég, eins og hv. þm. V.-Sk. tók fram; að hv. þm. Borgf. mundi ekki óska þess, að úr hans héraði yrði fluttur sá dýralæknir, sem þar er, til þess að hægt yrði að láta fara fram þessa vísindalegu rannsókn. Það væri hliðstætt því, ef því væri haldið fram, að ekki þyrfti lækni í héraði, þar sem vísindaleg lækningatilraunastöð væri styrkt og starfrækt.