29.04.1933
Neðri deild: 59. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1878 í B-deild Alþingistíðinda. (2713)
161. mál, tollalög
Frsm. (Hannes Jónsson):
Ég hefi ekki mikið að segja f. h. n. viðvíkjandi þessu frv. Má vísa til grg., þar er allt tekið fram, sem máli skiptir. Eins og hv. þdm. hafa séð af henni, þá er þessi breyt. á tolllögunum frá 1921 gerð í því augnamiði að ná inn í ríkissjóð nokkru meiru heldur en fæst samkv. lögum frá 1927 og 1931. Þessar ívilnanir frá 1927 og 1931 voru gerðar til þess að styðja innlendan iðnað, og nú hefir tekizt svo vel, að þessar tvær vörutegundir, sem hér um ræðir, eru algerlega framleiddar í . landinu. Þess vegna er hér ekki um innflutningstoll að ræða, þar sem engin hætta er á, að innflutt verði, svo nokkru nemi, af þessum vörutegundum á næstunni. Eins og hv. þdm. hafa séð bæði á grg. og nál. á þskj. 45, þá er búizt við, að tekjuauki ríkissjóðs nemi 142 þús. kr., og er þá miðað við svipaða framleiðslu eða neyzlu og árin 1931 og 1932. Auðvitað getur þetta orðið minna eða meira, eftir því, hvort neyzlan minnkar eða eykst. Tekjur ríkissjóðs yrðu af þessum vörum, miðað við það, ef allt væri innflutt og tollur greiddur samkv. lögum frá 1921, af öli 47% og af kaffibæti 84% af innflutningsgjaldinu.
Einn nm., hv. þm. N.-Ísf., hefir haft fyrirvara um upphæð hækkunarinnar, og einn, hv. þm. G.-K., var ekki viðstaddur afgreiðslu málsins og hefir því að sjálfsögðu óbundnar hendur við atkvgr.
Ég sé svo ekki ástæðu til að orðlengja þetta; hv. þdm. hafa séð grg. og geta gert sér ljóst af henni, hvað hér er um að ræða.