29.04.1933
Neðri deild: 59. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1879 í B-deild Alþingistíðinda. (2714)

161. mál, tollalög

Jón Auðunn Jónsson:

Eins og hv. frsm. tók fram, skrifaði ég undir nál. með fyrirvara. Ég er þeirrar skoðunar, að svona mikil hækkun leiði ekki til tekjuauka, heldur þvert á móti til tekjurýrnunar. Hvað ölið snertir, þá veit ég, að farið er að brugga það óleyfilega á ýmsum stöðum á landinu. Hvort það er mikið yfir það áfengismagn, sem lög heimila, veit ég ekki, en þó býst ég við, að svo sé á nokkrum stöðum. Með því nú að hækka tollinn svona mikið, þá er hætt við, að óleyfilegur tilbúningur á öli mundi aukast. Einhverjir hafa ef til vill heyrt þess getið í útvarpinu, að öltollurinn í Englandi hefir brugðist, og er hann þó þar ekki nema 40 aurar á lítrann. Þar var gjaldið talið of hátt, og var þess vegna það ráð tekið til þess að auka tekjur ríkissjóðs að lækka tollinn um ¼, og telja þeir, að við þetta muni neyzla og tekjur ríkissjóðs aukast. Ég held, að talsvert taki fyrir öldrykkju á opinberum veitingastöðum, ef ölið verður mjög dýrt, einkum ef tekinn verður upp veitingaskattur, eins og ég hefi heyrt, að í ráði sé.

Þá kem ég að kaffibætinum. Ég hygg, að gífurleg hækkun tollsins muni líka draga úr neyzlu hans. Og þá er á það að líta, hvort það er til hagsbóta fyrir ríkissjóð, að minna verði neytt af kaffibæti og meira af kaffibaunum. Hvernig sem á þetta er litið, þá þýðir þetta aukin útgjöld fyrir neytendurna. Það má vera, að þessi tollur á kaffibæti gefi ríkissjóðnum auknar tekjur, en það eykur innflutning á kaffibaunum, dregur úr innlendri framleiðslu og verður dýrara fyrir neytendurna.

Ég hefi haft mikið annríki undanfarna daga, svo að mér hefir ekki unnizt tími til þess að koma með brtt. ennþá, en mun gera það til 3. umr. Ég sé fulla nauðsyn á því að afla ríkissjóði tekna, en hinsvegar sé ég getuleysi almennings, og ég tel varhugavert að auka skattana, svo að ríkissjóður verði ekki fyrir tekjumissi, í stað þess að tekjur hans aukist, og að mönnum verði ekki um of íþyngt með auknum sköttum.