11.04.1933
Neðri deild: 50. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 271 í B-deild Alþingistíðinda. (272)

1. mál, fjárlög 1934

Lárus Helgason:

Fyrst vildi ég minnast á brtt. á þskj. 366,XVIII., frá samgmn. N. leggur til, að til Öræfinga gangi 600 kr. af því fé, sem bátnum Skaftfellingi er ætlað í fjárlfrv. Ég vildi nú spyrja hv. frsm. samgmn., hvort það sé meiningin, að Öræfingar eigi ekki að hafa afnot bátsins framvegis, sem sagt hvort alveg eigi að sleppa þeim í því sambandi. Ég get varla skilið, að það sé meiningin. Þó að víða sé erfitt fyrir þann bát að halda uppi samgöngum, þá er það þó hvergi eins erfitt og við Öræfi. Hingað til hefir allt verið gert, sem unnt hefir verið, til þess að hjálpa Öræfingum með bátsferðum þessum, og af því hefir báturinn ekki haft annað en fjárhagslegt tap. Nú eru liðin 4 ár síðan byrjað var að slátra fé í Öræfum til burtflutnings. Í 3 skipti hefir verið reynt að flytja kjötið frá þeim að haustinu. Í tveimur tilfellunum hefir það heppnazt, en í eitt skiptið misheppnaðist það. Og ekki nóg með það. Að vorinu hefir svo verið reynt að ná þessu kjöti frá þeim, þessum 100 tunnum — en báturinn tekur 300—400 tunnur — og orðið hefir að gera margítrekaðar tilraunir til þess, áður en tekizt hefir.

Skal ég hiklaust mæla með því, að Öræfingum verði greitt, ekki aðeins 600 kr., heldur að mun meira. Því að það væri stórhagur fyrir bátinn að þurfa ekki að gera sér neitt ómak vegna þessarar afskekktu sveitar.

Ég legg til, að hv. dm. felli þessa till., því hún er með öllu óréttmæt og þessari sveit til tjóns. Ef losa ætti bátinn við að hjálpa Öræfingum eins og hann hefir gert, nægði ekki minna en fleiri þús. kr. Þess skal getið, að Öræfingum hefir verið ívilnað með fragt á vörunum, t. d. síðastl. vor, með tilliti til hins afarmikla verðtolls, sem orðinn var á afurðunum, sem varð enn tilfinnanlegra fyrir það, að afurðirnar frá haustinu 1931 náðust ekki úr Öræfum fyrr en vorið 1932, og náði Skaftfellingur þeim þá með ærnum kostnaði og þrautseigju skipshafnarinnar. Af framansögðu verð ég að mótmæla þessari aths. hv. samgmn., því að hún er sýnilega byggð á misskilningi og ókunnugleika. Síðari hluti aths. er og með öllu þýðingarlaus, því að Skaftfellingur hefir ávallt komið að Rangársandi, þegar þess hefir verið þörf og ástæður hafa leyft. Ég tel því réttast, að hv. n. tæki þessa aths. sína til baka, eftir að hafa fengið þessar upplýsingar í málinu. Geri n. það ekki, vænti ég, að hv. d. felli aths. þessa nú þegar.

Þá á ég brtt. á þskj. 376, rómv. IX, um að Jóni Gíslasyni verði veittar 1500 kr. til lokanáms í málfræði í Þýzkalandi. Ég skal þegar láta þess getið, að ég hefi aldrei mann þennan séð. En menn, velviljaðir honum, hafa beðið mig um að koma málaleitun þessari á framfæri hér á Alþingi. Ég þekki því ekki af eigin kunnugleik ástæður þessa manns, en þeir, sem þekkja hann, fullyrða, að þær séu mjög erfiðar.

Piltur þessi lauk stúdentsprófi við hinn almenna menntaskóla hér í Reykjavík vorið 1929 með hárri 1. einkunn. Í júlímánuði sama ár veitti menntamálaráðið honum styrk til þess að fara utan til að leggja stund á latínu og grísku sem aðalnámsgreinar, og frönsku sem aukanámsgrein. Hann byrjaði þegar um haustið á námi sínu við háskólann í Berlín, eftir að hafa lokið þeim undirbúningsprófum, sem hann þurfti að leysa af hendi til þess að komast inn í háskólann. Fyrstu árin las hann við háskólann í Berlín, en síðan við háskólann í Münster í Westfalen. Allan þennan tíma mun hann hafa lagt hart að sér við námið og verið hinn reglusamasti í hvívetna, sem m. a. má marka af því, að menntam.ráðið hefir þegar veitt honum styrk í 4 ár. Að sjálfsögðu hefir þessi styrkur verið honum mikil hjálp, en þar sem hann fæst ekki lengur en í 4 ár, en námið tekur piltinn óumflýjanlega 5 ár, verður hann því í hreinustu vandræðum að komast af þetta síðasta ár, fái hann ekki styrk einhversstaðar frá, og þess vegna hefi ég léð máls á því, að bera pilt þennan fram við þingið. Mér fellur það illa, að það skuli almennt vera kallað bitlingar, þó farið sé fram á, að fátækir og efnilegir námsmenn séu styrktir til náms. Ég tel það enga bitlinga, þó að ríkið hlaupi undir bagga með slíkum mönnum. Þvert á móti tel ég því fé yfirleitt vel varið, sem gengur til þess að styrkja fátæka námsmenn, sem oft eru nær þrotnir að heilsu og kröftum vegna erfiðleikanna við að brjótast áfram í fátækt sinni. Mér finnst líka, að þjóðin megi ekki við því að fara svo með börn sín, að hætta geti verið á, að þau líði skort og um leið hnekki vegna fátæktar.

Ég get nú alls ekki mælt betur með styrkbeiðni þessari en með því að lesa upp meðmæli þau, sem send hafa verið til þingsins frá kennurum þessa manns. Bréf frá Þorleifi H. Bjarnason yfirkennara hljóðar svo: „.... Stud. philol. Jón Gíslason er útskrifaður úr menntaskólanum í Reykjavík 1929 með loflegum vitnisburði. Hann hefir þegar um nokkur ár lagt stand á gömlu málin, latínu og grísku, og auk þeirra frakknesku, fyrst í Berlín, síðan tvo vetur í Münster í Westfalen. Mér er kunnugt um, að hann hefir sótt námið svo fast, að hann hefir tvisvar að læknisráði orðið að taka sér nokkurra vikna hvíld sakir ofþreytu. Þetta er skiljanlegt, er þess er gætt, að hann hefir aðeins numið latínu hér í menntaskólanum í þrjá vetur, en flestir ef ekki allir námsfélagar hans syðra hafa hinsvegar lesið hana f lærðum skólum í Þýzkalandi í 6-8 ár. Þeir hafa lesið grísku í 5—6 ár, en hann mun fyrst hafa lært gríska stafrófið er hann kom þangað suður. Loks munu flestir námsfélagar hans hafa lesið frakknesku í 4 ef ekki 5 ár, en hann hefir aðeins lesið hana hér heima í 2 ár. Þegar þessa er gætt og að hann verður að stunda nám þetta á tungu, sem ekki er móðurmál hans, geta menn farið nærri um, að eftirreiðin er örðug og lítil von um, að hann geti lokið prófi þessu fyrr en 1935.

Jón Gíslason er einkar ástundunarsamur og samvizkusamur ungur maður, gæddur góðum gáfum og reglusamur með afbrigðum. Hann er gott efni í kennara og gat sér gott orð hjá fólki hér í bæ, sem að ráði mínu lét hann veita tilsögn börnum sínum meðan hann var í skóla.

Ég vona, að hið háa Alþingi sjái sér fært að veita honum hinn umbeðna styrk og minnist þess, að í okkar fámenni eru þeir ekki á hverju strái, er geta kennt 4 erlendar tungur. Á hinn bóginn er hætt við, að styrk þeim, er hann hefir notið til þessa, yrði á glæ kastað, ef hann þyrfti nú vegna fjárskorts að hætta námi sínu í miðju kafi“.

Tvö bréf frá kennurum hans í Þýzkalandi hafa mér líka borizt. Þau hljóða þannig í íslenzkri þýðingu:

„Münster í Westfalen, 10. jan. 1933. Ég hefi kynnzt herra stud. phil. Jóni Gíslasyni meðan hann hefir dvalið við háskólann í Münster (veturinn 1931—32), bæði í gegnum kennsluæfingar hans og af persónulegu viðtali og umgengni við hann.

Hingað til hefir herra Jón Gíslason stundað háskólanám sitt með óþreytandi elju og sýnt mikinn vísindalegan áhuga. Honum hefir sýnilega farið mikið fram með ári hverju, og ég efast ekki um, að hann geti lokið námi sínu með góðum árangri og tekið embættispróf.

Líklega nægir ekki fjögurra ára nám til þess. Fjögurra ára nám er lágmarksnámstíminn, sem heimtaður er til embættisprófs, og vel gefnir þýzkir stúdentar hafa oft komizt í gegnum prófið eftir þann námstíma. En fyrir útlendinga — og einnig herra Jón Gíslason — álít ég, að undir venjulegum kringumstæðum sé fimm ára nám nauðsynlegt. Ég vil því mjög ákveðið mæla með því, að Jón Gíslason geti notið námsstyrks síns þangað til um páskaleytið 1935. Það væri mjög æskilegt, bæði vegna hans sjálfs og til þess að nám hans geti komið að fullu gagni.

Beckmann, dr., prófessor“.

„Ég vil mjög eindregið mæla með því, að herra Jón Gíslason geti notið námsstyrks síns áfram. Liggja þær ástæður til þess, að fyrir útlending, sem hefir ekki átt kost á því (á Íslandi) að njóta fullkominnar undirstöðumenntunar undir háskólanám í klassískum málum, er það óhjákvæmilegt, að námið taki lengri tíma en fyrir þýzka stúdenta.

Ég hefi kynnzt Jóni Gíslasyni sem mjög iðnum og áhugasömum ungum manni, bæði í gegnum nám hans og líka sem gesti á heimili mínu. Hann sýnir í náminu vakandi, vísindalegan áhuga, enda fer honum fram með ári hverju, og það er auðséð, að hann er þegar orðinn mjög vel að sér í aðalfögunum, báðum klassísku málunum, og auk þess frönsku. Ég get sem sagt með góðri samvizku mælt með því, að hann fái að njóta styrksins áfram, bæði vegna þess, hve vel hann er orðinn að sér, og einnig vegna persónulegrar samúðar með honum.

Hermann Schöne, dr. phil., dr. med.“

Þessi meðmæli, sem ég nú hefi lesið, virðast benda mjög ótvírætt til þess, að hér sé um mjög efnilegan mann að ræða, mann, sem gæti orðið að miklu gagni fyrir þjóð sína, ef hann fær tækifæri til þess að ljúka þessu erfiða námi sínu. Eins og ég tók fram í upphafi máls míns, þá hefi ég ekki séð mann þennan, en flutt till. fyrir kunnuga menn, velviljaða honum. Ég vænti nú, að hv. deild sjái sér fært að verða við þessari beiðni, enda þótt þröngt sé í búi. Það munar ríkissjóð ekki svo miklu.

Þá á ég brtt. á þskj. 366, rómv.27, um 1500 kr. til þess að ljúka við fyrirhleðslu Skálmar í Álftaveri. Þetta er ekki nýr gestur hér í d., því að ég flutti brtt. þessa við 2. umr. fjárl. um daginn, en tók hana þá aftur fyrir tilmæli hv. þm. Str., sem er forseti Búnaðarfélags Íslands. Hann bjóst nefnilega við því, að Búnaðarfél. gæti jafnvel komið verki þessu í gegn, en nú reynist svo, að það getur það aðeins að litlu leyti, ¼ hluta. Ég hefi því breytt upphæðinni úr 2000 kr. niður í 1500 kr. Er hún þannig 500 kr. lægri en upphæð sú, sem ég fór fram á að fá við 2. umr. Ég skal ekki fara mörgum orðum um till. þessa nú, því að ég mælti með henni við síðustu umr. og dró þá fram þær ástæður, sem liggja til grundvallar fyrir beiðninni: Hér er um það að ræða, að ljúka verki, sem hið opinbera hefir tvisvar sinnum veitt fé til áður. En það er að fullgera varnargarð til þess að varna jökulánni Skálm að fara yfir engjar Álftveringa. Það er þegar búið að vinna töluvert að þessu verki, en ennþá vantar nokkuð á, að það komi að fullu gagni. Þarf því óumflýjanlega að halda því áfram og fullgera það, og hefir sá kostnaður verið áætlaður 3 þús. króna. Þar af leggja héraðsbúar fram 1/3 hluta, eða 1000 kr., Búnaðarfélagið sennilega 16 eða 500 kr. Er því farið fram á að fá úr ríkissjóði helming, eða 1500 kr. Hér er um að ræða sveit, sem nær öllum sveitum frekar hefir átt við erfiðleika að stríða, bæði undanfarin ár og endur fyrir löngu. Árið 1918 kom Katla flóandi og fór yfir lönd manna í sveit þessari. Býlin stóðu upp úr flóðinu, eins og „klettur úr hafinu“. Fénaður bænda féll þá allmjög, og varð tjónið þeim ennþá tilfinnanlegra sakir þess, að gífurleg verðhækkun varð þá á öllum sauðfjárafurðum rétt á eftir, sem þeir lentu í, er þeir keyptu bústofn sinn aftur.

Þá má og geta þess, að um þetta svæði liggur enginn þjóðvegur, heldur eru allir vegir þar sýsluvegir. Getur því ekki orðið um það að ræða, að þessir menn fái atvinnubótavinnu gegnum fjárveitingar til þjóðvega, eins og til er ætlazt, að ýms héruð fái. Væri því vel til fallið að veita þeim þennan litla styrk. Hann myndi koma að tvöföldu gagni fyrir sveitina, fyrst og fremst með því að gera hana betri og byggilegri, og í öðru lagi fengju hinir fátæku bændur þar tækifæri til þess að vinna sér inn nokkra aura. Ég vænti því, að hv. dm. samþykki fjárveitingu þessa. Þeir þurfa ekki að iðrast þess.

Þá á ég tvær brtt. á þskj. 396. Önnur er við 13. gr. og fer fram á 5000 kr. tillag til Síðuvegar. Hv. fjvn. hefir lagt til, að í fjárl. fyrir árið 1934 verði veittar til þessa vegar 3000 kr., en það er allt of lítið. Það, sem ég fer fram á, er það allra minnsta, sem komið getur til greina, þar sem þarna er um mjög langan veg að ræða, a. m. k. 15 km., og sumstaðar frekar vondan. Ég sé, að hv. fjvn. hefir getað fallizt á að hækka dálítið samskonar upphæðir sem þessa í öðrum héruðum, sem þó á engan hátt hafa meiri rétt á sér til þess að hækka en þessi. Að þessu athuguðu vænti ég, að hv. n. geti fallizt á till. mína og viðurkennt, að hér sé ekki um miklar kröfur að ræða, þar sem aðeins er farið fram á þessa einu upphæð til þjóðvega í Vestur-Skaftafellssýslu, enda þótt um 130—140 km. vegi sé að ræða. Hér er aðeins verið að hugsa um versta kaflann á þessum langa og torfarna vegi.

Þá á ég aðra brtt. á þskj. 396, ásamt tveimur öðrum hv. þdm. Er hún um það, að auka eftirlaun Helgu Finnsdóttur, ekkju Guðm. sál. Bárðarsonar, úr 600 kr. upp í 1200 kr. Okkur flm. brtt. þessarar hefir verið tjáð það af kunnugum mönnum, að mjög væri illa ástatt fyrir konu þessari hvað fjárhag snertir. Hún er talin kona bláfátæk og heilsulaus, og er því sýnilegt, að enda þótt 600 kr. eftirlaun á ári sé betra en ekki neitt fyrir hana, þá muni þó svo lág upphæð hrökkva skammt til þess að halda uppi heimili. Guðm. heitinn Bárðarson var þjóðkunnur maður, og báru allir, sem kynntust honum, hlýjan hug til hans. Býst ég því við, að þeir verði fáir, sem telja það eftir, þó að konu hans verði veittar 1200 kr. á ári í eftirlaun. Það eru ekki talin mikil laun hér í Reykjavík, þó að menn hafi 4—6 þús. kr. á ári. En hvað er það þá fyrir heimili eins og hér er um að ræða, sem svipt er fyrirvinnunni, að hafa á ári upphæð, sem svarar til aðeins eins mánaðar launa. Þetta vænti ég, að hv. flm. athugi, jafnframt því sem þeir meti starf hins þekkta vísindamanns, og samþykki till. okkar.

Sé ég svo ekki ástæðu til þess að fjölyrða frekar.