02.05.1933
Neðri deild: 61. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1886 í B-deild Alþingistíðinda. (2724)

161. mál, tollalög

Jón Auðunn Jónsson:

Ég skal ekki endurtaka það, sem ég sagði um þetta mál við 2. umr. En ég hefi í samræmi við það borið fram brtt., sem ég vænti, að nái samþykki deildarinnar, því að hér er farið fram á svo litla breyt., minni en ég hefði talið rétt vera. Hinsvegar sá ég, að fast var fyrir um að breyta neinu í þessu efni. Sneið ég því brtt. mína með tilliti til þess. Brtt. fer fram á að tvöfalda skatt af öli og kaffibæti, sem hvorttveggja er framleitt í landinu sjálfu, en í frv. er gert ráð fyrir að þrefalda þennan skatt.