05.05.1933
Neðri deild: 61. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1888 í B-deild Alþingistíðinda. (2727)

161. mál, tollalög

Jón Auðunn Jónsson:

Hv. frsm. hefir ekki hrakið það, sem ég sagði við 2. umr. þessa máls. Mín brtt. er alls ekki samin vegna framleiðendanna, heldur vegna neytendanna. Í fyrsta lagi myndi svo gífurleg hækkun á tollinum draga úr neyzlunni. Og hvað ölinu viðkemur, þá held ég því fram, að þetta mundi auka til muna ólöglegan tilbúning á öli, en af því öli kemur ekkert inn í ríkissjóðinn. Þessi þrefalda hækkun yrði því engin tekjuhækkun fyrir ríkissjóð, heldur þvert á móti til þess að draga úr þeim, og mundi auk þess skaða löglegu framleiðsluna í landinu.

Um kaffibætinn er það að segja, að ég hefi átt tal um þetta við húsmæður, sem þekkja til um kaffitilbúning, og telja þær, að þetta mundi verða til þess að draga úr notkun kaffibætis, en í stað þess yrði notað meira af kaffibaunum. En þá yrðum við að flytja inn í landið vöru, sem bætti upp innlendu framleiðsluna. Hér álít ég, að rangt sé stefnt. Auk þess mundi þetta minnka atvinnuna. Ölgerðin hefir greitt um 100 þús. kr. í vinnulaun á ári og kaffibætirinn yfir 40 þús. kr. Auk þess hefir ölgerðin greitt drjúgan skerf í tekju- og eignarskatt til ríkissjóðs. Það er því sýnilegt, að ríkissjóður mundi bæði beinlínis og óbeinlínis missa tekjur við þessa hækkun.