11.04.1933
Neðri deild: 50. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 277 í B-deild Alþingistíðinda. (273)

1. mál, fjárlög 1934

Jónas Þorbergsson:

Ég á við þessa umr. flokk af brtt. á þskj. 366 og 376. Ég vona, að þessum till. verði vel tekið, m. a. vegna þess, að ég við síðustu umr. átti aðeins eina litla till. Skal ég nú víkja að þessum till. nokkrum orðum.

Fyrsta till. er við 12. gr., á þskj. 376, þess efnis að hækka liðinn ýms gjöld til landsspítalans um 3500 kr., með því skilyrði, að jafnhárri upphæð verði varið til þess að setja útvarpsleiðslur um spítalann og heyrnartól við rúm sjúklinganna.

Upphaf þessa máls er það, eins og kunnugt er og rætt hefir verið um hér í hv. d., að strax á árinu 1930 voru gerðar ráðstafanir til þess að leggja leiðslur um heilsuhæli landsins og setja heyrnartól við rúm sjúklinga á hælunum og nokkrum öðrum sjúkrahúsum landsins. Það fer ekki á milli mála, að þetta er stór umbót á sjúkrahúsunum og þakksamleg. Samskonar ráðstafanir voru ekki gerðar um landsspítalann vegna þess að landsspítalinn var þá ekki tekinn til starfa. En nú hefir útvarpinu borizt bænarskrá undirskrifuð af öllum sjúklingum á landsspítalanum þess efnis, að sjúklingarnir mættu njóta í þessu efni sömu hlunninda og sjúklingar heilsuhælanna. Þessa bænarskrá hefir útvarpið sent heilbrigðisráðuneytinu og fengið það munnlega svar, að ráðuneytið treysti sér ekki til að verða við þessari ósk, nema með heimild frá Alþingi og sérstakri fjárveitingu, en þar sem ráðuneytið hefir ekki séð sér fært að taka slíka fjárveitingu upp í fjárlög, þá sá ég mig neyddan til þess að bera fram þessa brtt., og veit ég, að heilbrigðismálaráðh. er henni samþykkur. Ef till. mætir mótspyrnu, geri ég ráð fyrir, að óskað verði nafnakalls um hana, svo það komi í ljós, hverjir treysta sér til þess að ganga á móti þessari sanngjörnu ósk sjúklinganna.

Þá á ég á sama þskj. till. um að hækka um 1000 kr. framlag ríkissjóðs til læknisbústaða og sjúkraskýla, sbr. 12. gr., og komi þessi hækkun til sjúkraskýlisins í Búðardal. Það stendur svo á í Búðardal, að þar eins og víðar hefir verið reist sjúkraskýli nú fyrir skömmu. Á þessum stað var meiri þörf á slíku skýli en víða annarsstaðar, vegna hinna erfiðu samgangna við Breiðafjörðinn, bæði á landi og sjó. Það skal játað að vísu, að nú á síðustu árum hafa samgöngur á landi nokkuð batnað, og hefir Dalasýsla fengið samband við aðalvegi landsins, þó enn skorti allmikið til, að þær samgöngur séu komnar í æskilegt horf. En hvað viðkemur samgöngunum á sjónum, þá munu þær óvíða erfiðari hér við land, nema ef vera kynni sumstaðar á Suðurlandi.

Þegar ákveðið var að byggja þetta sjúkraskýli, þá var þessum málum svo háttað, að ákveðið var af Alþingi að styrkja slíkar byggingar eftir ákveðnum hlutföllum móti framlögum héraðanna, og skal ég geta þess, að fjárveitingarvaldinu fórst drengilega í þessu tilfelli, þó hér yrði um nokkuð meiri kostnað að ræða heldur en áætlað hafði verið, og nú skortir enn um 3000 kr. styrk frá ríkinu til þess að styrkurinn verði að vöxtum eftir því hlutfalli, sem upphaflega var gert ráð fyrir. Það má nærri geta, að héraðið er í vanda statt í þessu máli. Það hefir lítil peningaráð, eins og héruð yfirleitt, og þegar þessar framkvæmdir eru gerðar í því trausti, að til þeirra fáist ákveðinn styrkur, og þegar svo styrkurinn bregzt að meira eða minna leyti, þá berast héraðsbúum að höndum svo sérstök vandræði, að þeir fá ekki undir þeim risið hjálparlaust. Hefir því verið alvarlega skorað á mig að fá því til vegar komið, að Alþingi tæki þátt í byrði þessari, og því hefi ég leyft mér að flytja till. um 1000 kr. til sjúkraskýlisins í Búðardal, og vil ég vona, að hv. þdm. taki þeirri till. með sanngirni.

Þá á ég brtt. við 14. gr. á þskj. 366, þar sem farið er fram á, að Kvennabrekkusöfnuði í Dalasýslu séu veittar 3000 kr. í eitt skipti fyrir öll vegna sérstakra fjárhagsvandræða, sem söfnuðurinn er í vegna kirkjubyggingar. Till. sama efnis og þessi lá fyrir hv. Alþingi í fyrra og fékk þá að vísu allgóðar undirtektir, þótt hún næði ekki samþykki. Ég geri ráð fyrir því, að hv. þdm. hafi þá ekki áttað sig á því til fulls, að hér er um að ræða mikla nauðsyn og að þetta mál er alveg sérstaks eðlis. Þess vegna vil ég nú leyfa mér að fara um það nokkrum orðum: Nú liggur fyrir beiðni um þennan styrk frá einum af sóknarnefndarmönnum Kvennabrekkusafnaðar, þar sem nokkuð er skýrt frá því, hvernig háttað er um þetta mál, og sömuleiðis beiðni sú í fyrra, er til þingsins var send, undirskrifuð af flestöllum sóknarbörnum safnaðarins. Málinu er þannig háttað, að á árunum 1925—1927 var byggð ný kirkja og flutt frá Sauðafelli að Kvennabrekku. Um þennan flutning kirkjunnar varð allmikill ágreiningur innan safnaðarins, sem hafði þær afleiðingar, að allmörg af sóknarbörnunum sögðu sig úr þjóðkirkjunni og hættu þar af leiðandi að greiða til hennar lögboðin gjöld. Að vísu hafa allmargir af þeim, sem gengu úr þjóðkirkjunni, horfið til hennar aftur, en með því skilorði, að þeir verði ekki látnir greiða til kirkjunnar hærri gjöld en lögskipað er. Þetta hefir haft þær afleiðingar, að sá fjárhagslegi þungi, sem leiddi af kirkjubyggingunni, hefir lagzt á tiltölulega fáa menn í söfnuðinum og er þeim algerlega ofurefli. Það er svo ráð fyrir gert í lögum landsins, að söfnuðurinn skuli eiga og halda uppi kirkjum sínum. Hinsvegar eru lög um það, að mönnum er frjálst að ganga úr þjóðkirkjunni, ef þeir greiða gjöld til háskólans, tilsvarandi kirkjugjöldunum. Það segir sig sjálft, að með því fyrirkomulagi getur mjög óeðlilegur þungi komið á fáa menn. Að vísu var það fyrir sérstök atvik eða slys, að svo fór í Kvennabrekkusöfnuði, en þegar svo ber að, þá segir það sig sjálft, að hér er um tilfelli að ræða, sem ekki er fullkomlega séð við af löggjafarvaldinu og fjárveitingarvaldinu, og er því algerlega óafsakanlegt af Alþingi að láta það afskiptalaust, að nokkur hluti safnaðar sé látinn bera uppi þann þunga, sem allur söfnuðurinn ætti að bera. Nú er mér tjáð það, að ef styrkur þessi fengist, þá mundi ágreiningurinn leiðréttast og nær allir meðlimir safnaðarins mundu sameinaðir bera þann kostnað, sem þá er eftir. Þess vegna vil ég mjög eindregið mæla með því, að hv. þd. sjái sér fært að samþ. þessa fjárveitingu.

Þá á ég brtt. á þskj. 366, XXXI, um að veita Sambandi ísl. karlakóra 3500 kr., eða til vara 3000 kr. styrk. Ég er að vísu ekki fyrsti flm. þessarar till., heldur meðflm. þeirra hv. 3. þm. Reykv. og hv. þm. Ísaf., en mig langar þó til að mæla með þessari till. Ástæðan til þess, að farið er fram á þessa fjárveitingu, er sú, eins og hv. meðflm. mínum er kunnugt, að þessir söngkórar eiga við mikil fjárhagsvandræði að búa og eiga því erfitt að halda uppi starfsemi sinni, sem krefst meiri alúðar og þrautseigju, en margir ætla. Sem dæmi má nefna það, að til þess að halda einn samsöng þarf kórinn að æfa verkefnin hálfan eða heilan vetur áður. Það vill fara svo, að samsöngvar þessara kóra eru ekki eins vel sóttir og skyldi, og stafar það af því, að því er virðist, að tíðarandinn sækist meira eftir danslögum og léttri tónlist heldur en hinni háa list, er söngkórar halda uppi. Fyrir Alþingishátíðina 1930 bjuggu þessir kórar sig undir það að syngja á hátíðinni í þjónustu þess opinbera. Við þann undirbúning höfðu kórarnir Sigurð Birkis, sem talinn er færastur söngkennari hér á landi, sér til aðstoðar, og greiddu þessir kórar honum laun af sinni fátækt, en eftir hátíðina sáu kórarnir sér ekki fært að kosta þennan söngkennara áfram, og varð hann því að leita sér annarar atvinnu. Nú fer Samband ísl. karlakóra fram á það, að geta aftur ráðið þennan eða annan mann í þjónustu sína, til þess að þjálfa raddir manna og leiðbeina í þessari list. Annars skal ég ekki fjölyrða meir um þessa till., þar sem hv. 3. þm. Reykv. hefir þegar talað svo vel fyrir henni, og treysti ég hv. þd. til þess að veita þennan stuðning.

Þá á ég á sama þskj. XXXII. brtt. ásamt hv. þm. S.-Þ., um að veita Baldvin Jónatanssyni alþýðuskáldi 400 kr., eða til vara 300 kr., til ritstarfa. Mér finnst ástæða til að benda á það, að þetta er eina till., sem hv. þm. S.-Þ. gerist flm. að við afgreiðslu fjárl., því hann er, eins og kunnugt er, form. fjvn. og mikill sparnaðarmaður. (TrÞ: Á hann sjálfur að fá styrkinn?). Ég er að segja, að hann sé form. fjvn. og sparnaðarmaður, og megi því álíta, að eina brtt., sem hann flytur, sé ekki tómur hégómi, enda tel ég víst, að hún verði samþ. (ÓTh: Hún verður felld). Ég vil þó fara um hana örfáum orðum, henni til stuðnings. Þessi maður, Baldvin Jónatansson, er alþýðuskáld norður í Þingeyjarsýslu. Það hefir ekki farið hátt um hann fremur en marga aðra hans líka. Hann er þó gæddur merkilegum gáfum. Hann er svo mikill hagyrðingur, að hann mælir stef af munni fram jafnhratt og hann talar. Hann hefir nú um nokkurt skeið safnað þjóðsögnum og sögum og stílfært þær. Hafa þessar sagnir birzt í þjóðsögusafni, sem gefið hefir verið út á Akureyri og heitir Gríma, og ef hv. þm. hafa lesið það, sem þessi maður á í því safni, þá munu þeir hafa tekið eftir því, að það er allt stílfært með sérstökum hætti. Því er svo háttað um íslenzka tungu, að hún fellur oft hreinust og snjöllust af vörum alþýðumanna þeirra, sem ekki hafa í skóla gengið, en hafa numið klið af vörum þjóðarinnar og kynnzt málfari hennar og sögnum í skóla reynslunnar einum saman. En svo er því farið með þennan mann. Hann hefir gert sér mikið far um að grafa upp gamlar sagnir og stílfæra þær og færa í sérstakan búning. Tel ég hann hiklaust einn af þeim beztu í þeirri list. Vona ég því að hv. d. telji ekki eftir að veita þessa litlu upphæð.

Þá á ég á sama þskj. XLIII. till., um að veita Önnu H. Eiríksdóttur ljósmóður 300 kr. eftirlaun. Undir sama tölulið er einnig till. um, að orðið „ljósmóður“ komi á eftir orðunum „Sigríðar Narfadóttur“ í 18. gr. II. i. 26; en það er aðeins leiðrétting, því að þetta orð virðist hafa fallið í prentun niður úr fjárlagafrv., og þarf ekki um það að deila. Hin till., eftirlaun til Önnu H. Eiríksdóttur, var hér fyrir þinginu í fyrra, en fékk þá ekki samþykki. Ég hefi ekki getað fengið meðnm. mína, til þess að taka hana upp í till. n. Að vísu hafa þeir engin rök fært fyrir þeirri skoðun, að þessa till. beri ekki að taka upp í fjárlögin. Eins og kunnugt er, eru smástyrkir, 200—300 kr., teknir inn í 18. gr. til margra ljósmæðra. Þetta hefir orðið venja, og virðast engin rök fyrir því, að þingið geti séð fært að kippa að sér hendinni allt í einu, með því að skera fyrir þennan litla styrk, sem uppgjafaljósmæðrum hefir verið veittur. Og eins og berlega var upplýst í fyrra, hefir þessi ljósmóðir samskonar rétt og aðrar ljósmæður í þessu tilfelli. Þessi kona hefir nú verið ljósmóðir yfir 30 ár, er bláfátæk og hefir unnið merkilegt starf. Og þegar nálega hver einasta prestsekkja á landinu er tekin með styrk inn í 18. gr., virðist einkennilegt að neita aftur á móti uppgjafaljósmæðrum um styrk. Það virðist svo, sem prestsekkjurnar hafi öflugan talsmann, þar sem biskupinn er. Þó hann séu að vísu hófsamur í kröfum sínum, þá eru þó flestar eða allar till. hans teknar til greina. Ljósmæðurnar eiga aftur á móti engan slíkan talsmann. En þar sem nú vill svo vel til, að á Alþ. situr sjálfur landlæknirinn, ætti hann að vera sjálfkjörinn talsmaður ljósmæðranna, eins og biskup prestsekknanna. Ég vænti þess, að hann styðji því þessa till. mína. En ef Alþ. ætlar nú að fara að taka fyrir styrk til ljósmæðra, þá verður að fara einhverjar aðrar leiðir til þess að bæta úr því ranglæti, sem af því myndi leiða.

Þá vil ég ekki láta hjá líða að mæla með brtt., sem 3 hv. þm. flytja á þskj. 396 og fer fram á að hækka styrk til Helgu Finnsdóttur, sem fjvn. leggur til, að verði 600 kr., upp í 1200 kr. Ég vil skora fastlega á hv. dm. að samþ. þessa till. Guðm. heitinn Bárðarson var einn af merkilegustu vísindamönnum okkar, og var hann búinn að fórna miklu fyrir vísindi sín og bjó alltaf við mikla fátækt. Ekkja hans og börn eru því nauðulega stödd nú við fráfall hans. Sonur Guðm. Bárðarsonar er nú við nám í Þýzkalandi og á mjög örðugt fjárhagslega. Guðm. Bárðarson stundaði lengi kennslu ásamt sjálfstæðum vísindastörfum, en öðlaðist þó aldrei rétt til eftirlauna, og stendur ekkja hans því nú uppi fjárþrota. En ég tel starf Guðm. Bárðarsonar svo merkilegt fyrir þjóð okkar, að full ástæða væri til þess, að Alþ. veitti ekkju hans þennan styrk, sem hér er farið fram á.

Þá kem ég að síðustu till., sem ég þarf að mæla fyrir, og er það 48. brtt. á þskj. 366. Þar er farið fram á, að varið skuli allt að 25 þús. kr. af verzlunarágóða Viðtækjaverzlunar ríkisins til þess að greiða fyrir útvarpsnotum þar, sem ekki er raforka fyrir hendi, eftir reglum, settum af atvmrn. Flestir hv. dm. munu vita, að til er tvennskonar viðtækjagerð. Það eru í fyrsta lagi þau tæki, sem nota straum beint frá rafveitu, eins og er í Reykjavík og öðrum þeim bæjum, sem rafveitu hafa. Hin tegundin af viðtækjum tekur rafmagn frá rafgeymum og rafhlöðum. Rekstrarkostnaður þessara tækja er miklu meiri en þeirra fyrrnefndu. Og það er ekki eingöngu kostnaðarhliðin, sem hér kemur til greina, heldur er það alltaf ýmsum örðugleikum bundið að nota rafgeyma og rafhlöður. Þegar rafhlöðurnar tæmast, verður það víðast hvar svo, að talsvert hlé verður á því, að notendur geti tekið á móti útvarpi, meðan verið er að útvega nýja rafhlöðu. Rafgeymana verður stöðugt að hlaða. Um þá tegund rafgeyma, sem algengast mun vera að nota við móttökutæki, er það svo, að þá verður að hlaða einu sinni í mánuði. Þessir rafgeymar eru glerhylki, fyllt af sýru og málmi, og ómeðfærilegir í mesta lagi. Þegar því þarf að flytja þá langan veg, vill oft fara svo, að þeir brotni eða sýran hellist niður. Og víða háttar svo til, að mjög örðugt er að ná til rafstöðvar, þar sem hægt er að fá þá hlaðna. Útvarpinu berst fjöldi umkvartana um þetta og beiðnir um það, að komið sé upp hleðslustöðvum sem víðast. Hér er farið fram á, að ríkisstj. fái heimild til þess að verja nokkru af verzlunarágóða Viðtækjaverzlunarinnar til hjálpar í þessu efni. Viðtækjaverzlunin var upphaflega stofnuð í þeim tilgangi að greiða fyrir útvarpsnotum. Sá tilgangur hefir náðst. Síðustu tvö árin hafa aukizt svo mikið útvarpsnot hér á landi, að við erum að komast í fremstu röð í Evrópu um hlutfallslega tölu útvarpsnotenda. Og það er mín skoðun, að ráðstafanir stj. með Viðtækjaverzlunina hafi átt drjúgan þátt í þessum miklu framförum. Og ég hefi alltaf litið svo á, að það væri óverjandi að láta útvarpsnotendur greiða tvöfaldan skatt til útvarpsins, fyrst verzlunarágóða Viðtækjaverzlunarinnar, og svo almennan skatt. Viðtækjaverzlunina á að reka eingöngu með hagsmuni notenda fyrir augum, og ríkið á að fá allar sínar tekjur af útvarpi með beinum sköttum. Hingað til hefir sú stefna verið höfð, að verja öllum ágóða verzlunarinnar til útvarpsrekstrarins. Ég vildi óska, að breytt yrði um stefnu í þessu máli, og Alþ. vildi ganga inn á að nota hluta af ágóða Viðtækjaverzlunarinnar til þess að hjálpa fólki úti um land til þess að fá sér tæki og hafa þeirra sem fyllst not. Þessi till. mín miðar í þá átt að hjálpa þeim, sem nú eiga erfiðast með að notfæra sér útvarp, og vona ég, að hv. d. samþ. tillöguna.