29.04.1933
Neðri deild: 61. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1892 í B-deild Alþingistíðinda. (2733)
161. mál, tollalög
Guðbrandur Ísberg:
Ég hefi aldrei sagt, að innlendir framleiðendur myndu setja verðið svo hátt, að þeir gætu ekkert selt. En viðvíkjandi hvítölinu sagði ég, að með þessari tollhækkun á því yrði það að líkindum selt með svipuðu verði og annað öl, en við því verði kaupa menn það ekki. Ég segi að líkindum, því ég býst við, að verð hvítöls mundi verða miðað meira við innkaupsverð þess, að viðbættum tolli, heldur en raunverulegt framleiðsluverð innanlands. A. m. k. er engin trygging gefin fyrir því, að svo verði ekki.
Það var þetta, sem já í orðum mínum, að tollhækkunin gerði það að verkum, að mjög lítill munur yrði á verðinu á hvítöli og öðru öli, og þá yrði það að rýma af markaðinum.