18.05.1933
Efri deild: 75. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1895 í B-deild Alþingistíðinda. (2743)

161. mál, tollalög

Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson) [óyfirl.]:

Ég vil mótmæla þeim orðum hv. 2. landsk., að tollurinn á kaffibæti væri gífurlegur. Það getur litið svo út í fljótu bragði, ef aðeins eru athugaðar tölur frv. En það var engin aðferð til þess að hækka toll af kaffibæti önnur en sú, að hækka innflutningsgjaldið. Í hinum sérstöku 1., þar sem veittar eru tollaívilnanir fyrir íslenzkan kaffibæti, er t. d. miðað við innflutningsgjaldið. En það er ekki hægt að tala um gífurlega tolla af þessari vörutegund, þegar innlendur kaffibætir kemst ekki í sama toll og áður var á öllum þeim kaffibæti, er til landsins fluttist. Í skjóli tollaívilnana hefir langmestur hluti öl- og kaffibætisframleiðslu flutzt inn í landið, en af því hefir ríkissjóður beðið verulegan skaða. Og hér er ekki einu sinni farið fram á að gera tollinn jafnháan og hann var áður, heldur aðeins að bæta ríkissjóði lítillega upp þann halla, er hann hefir beðið af þessu. — Og fyrir hönd íslenzks iðnaðar verður ekki kvartað, — í skjóli tollaívilnana hefur mestöll þessi framleiðsla flutzt inn í landið, en ég vil taka það skýrt fram, að til þess var aldrei ætlazt, að tekjur ríkissjóðs rýrnuðu mikið við þessa tilfærslu.