27.04.1933
Neðri deild: 59. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1905 í B-deild Alþingistíðinda. (2770)

150. mál, almennur ellistyrkur

Frsm. (Jón Auðunn Jónsson):

Ég hefi engu við að bæta nál. á þskj. 449. Hér er um bráðabirgðaráðstöfun að ræða, en n. þótti rétt að fallast á þessa till. hv. flm., þar sem fyrirsjáanlegt er, að ekki verði komið nú um stund skipulagi á almennar ellitryggingar.

Í nál. er skýrt frá því, hvernig sjóðirnir hafa byggzt upp, og n. álítur, að þessi hækkun gjaldsins til sjóðanna verði ekki tilfinnanleg. Hinsvegar er mjög nauðsynlegt, að gjald sjóðanna til gamalmenna verði hækkað, því að það eru þeir, sem fyrst verða atvinnulausir, og atvinnuleysið kemur harðast niður á þeim. Ég skal svo ekki fara fleiri orðum um þetta, en vænti þess, að hv. d. samþ. þetta frv.